Leita í fréttum mbl.is

Íhaldið setur ný met í borginni

Þegar maður hélt að íhaldsliðið gæti ekki toppað vitleysuna frá því þegar nýjasti meirihlutinn í borginni tók við skömmu eftir áramót þá dreif liðið í því. Formaður stjórnar REI undirritar viljayfirlýsingu um hagkæmnirannsóknir í Djíbjútí. Mogginn skammar liðið fyrir að svíkja hugsjónir sínar og telur að önnur eins lágkúra hafi ekki þekkst í borgarstjórn Reykjvavíkur. Þá rýkur liðið til og vill selja REI þó það sé nýbúið að skrifa upp á það í skýrslu stýrihópsins að REI eigi að vera 100 % í eigu OR. Ólafur F. segir að það komi ekki til greina að selja REI og stefnumörkunin sem unnið var að innan stýrihópsins verði í heiðri höfð.

Er það nema von að fólk hristi hausinn og átti sig ekki á því sem um er að vera. Mér var hins vegar kennt að líta alltaf á björtu hliðarnar í lífinu. En eina ánægjulega hliðin sem ég sé á þessu máli er sú að borgarfulltrúar íhaldsins sitja ekki ríkisstjórn og með sama áframhaldi sjá allir að ekkert þeirra á erindi þangað.

Eða eins og félagi Dagur orðaði það: Sjáfstæðisflokkurinn verður að fara að girða sig í brók.

Þetta er orðinn algjörlega höfuðlaus her og hann veit ekkert í hvaða átt á að stefna. Mitt í hinu endurnýjaða REI umróti þá minnist maður þess að liðið hefur ekki einu sinni komið sér saman um hver næsti borgarstjóri á þeirra vegum á að vera. Vonandi, borgarinnar vegna, sækja þau einhvern út fyrir sínar raðir. Svona miðað við frammistöðuna síðustu mánuðina.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

REI málið sprakk í höndunum á sjálfstæðismönnunum og politíska blóðið rann í stríðum straumum. Nú þegar sárin eru að gróa þá eru sjallarnir á fullu að tengja sömu sprengjuna aftur. Það er greinilegt að þetta fólk lærir ekki af mistökum sínum.

Sigurður Haukur Gíslason, 21.4.2008 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband