Leita í fréttum mbl.is

Óvönduð vinnubrögð bæjarráðs kosta bæjarbúa 5 milljónir króna

Sveitarfélagið Hornafjörður er opinbert stjórnvald. Því ber að haga ákvörðunum sínum og starfsháttum í samræmi við það.

Mikilvægt er að þeir sem leita til sveitarfélagsins, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða einstaklinga, geti treyst því að sveitarfélagið fari að lögum og reglum, sem opinberum aðilum eru sett og ekki síður þeim leikreglum sem það setur sjálft, t.d. í tengslum við útboð á vegum sveitarfélagsins.

Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar
Í upphafi árs samþykkti bæjarráð að auglýsa útboð vegna endurbóta á Grunnskóla Hornafjarðar (Heppuskóla). Þá samþykkti bæjarráð þá skilmála sem áttu að gilda í útboðinu. Tvö fyrirtæki buðu í verkið á þeim forsendum. Bæði tilboðin voru undir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð ákvað á fundi sínum þann 5. mars sl. að ganga til samninga við lægstbjóðanda þótt vísbendingar væru um að sá aðili stæðist ekki útboðsskilmálana. Undirritaður gerði strax athugasemdir við vinnubrögð bæjarráðs og taldi að þau stæðust ekki skoðun. Nauðsynlegt væri að fara betur yfir tilboðin út frá útboðsskilmálunum.

Farið á svig við útboðsskilmála
Á næsta fundi bæjarráðs virtust einhverjar efasemdir um ákvörðunina hafa náð að skjóta rótum í hugum fulltrúa Framsóknar – og Sjálfstæðisflokks. Við nánari skoðun hafði nefnilega komið í ljós að ákvörðun bæjarráðs frá 5. mars hvíldi ekki á nægjanlega styrkum stoðum. Álit lögfræðings sveitarfélagsins undirstrikaði það svo ekki varð um villst. Bæjarráð hafði haft sína eigin útboðsskilmála að engu. Nú voru góð ráð dýr – í orðsins fyllstu merkingu.
Fulltrúar Framsóknar – og Sjálfstæðisflokks í bæjarráði voru s.s. búnir að koma málinu í þá stöðu að allar líkur voru á því að fyrirtækið, sem var með hærra tilboð en stóðst skilmálana, hefði getað fengið lögbann á framkvæmdina. Til þess að koma í veg fyrir þessa atburðarás var ákveðið að leita sátta við fyrirtækið sem ekki var samið við. Sættir náðust og munu þær kosta sveitarfélagið – útsvarsgreiðendur – 4,6 milljónir króna auk þess sem lögfræðikostnaður sveitarfélagsins vegna málsins er um 400.000 kr. Þetta þýðir að skattgreiðendur á Hornafirði verða að punga út 5 milljónum króna vegna óvandaðra vinnubragða bæjarráðs. Svo ekki sé minnst á þann kostnað sem fólginn er í þeim álitshnekki sem sveitarfélagið verður fyrir þegar það fylgir ekki þeim leikreglum sem það sjálft setur.

Nauðsynlegar upplýsingar
Ástæðan fyrir þessu greinarkorni mínu er ekki síst sú að þegar tilboðin voru opnuð þá sýndu hornfirskir fréttamiðlar því ánægjulegan – en óvæntan – áhuga og fram kom að heimamenn ættu lægra tilboðið. Ég hef hins vegar saknað þess að þeir hafi sýnt eftirköstum ákvörðunar bæjarráðs jafn mikinn áhuga. Af þeim sökum sá ég mér ekki annað fært en að taka verkefnið að mér – að upplýsa bæjarbúa um handvömm bæjarráðs og kostnaðinn sem mun falla á bæjarbúa vegna hennar.

Árni Rúnar Þorvaldsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband