Leita í fréttum mbl.is

Fjölskyldumálin

Í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar lagði Samfylkingin á Hornafirði mikla áherslu á fjölskyldumálin. Þau eru hverju samfélagi mikilvæg. Til þess að við getum verið samkeppnishæf er mikilvægt að við getum boðið upp eftirsóknarverðar aðstæður fyrir fjölskyldufólk. Þess vegna lögðum við áherslu á þessi mál í okkar kosningabaráttu.

En það er ekki síður mikilvægur hluti af stefnu jafnaðarmanna að leitast við bæta aðstæður fjölskyldnanna almennt og reyna að lækka álögur á þeim eins og mögulegt er. Allir eiga að geta tekið þátt í þeim verkefnum, skemmtunum og frístundum sem samfélagið hefur upp á að bjóða hverju sinni óháð efnahag. Auðvitað geta ekki allir tekið þátt í öllu en við teljum að stefna sveitarfélagsins eigi að stuðla að því að allir geti tekið þátt í einhverju. Það er vont til þess að hugsa að einhver börn og unglingar geti ekki teikið þátt í skipulögðu æskulýðs - og tómstundastarfi af fjárhagslegum ástæðum. Sveitarfélagið verður að leitast við að koma í veg fyrir að slíkt geti átt sér stað.

Í kosningunum ræddum við sérstaklega um leikskólann og íþrótta - og tómstundastarf barna og unglinga. Fyrst allra framboða, töluðum við um nauðsyn þess að skoðaðar verði leiðir til þess að lækka kostnað fjölskyldna við þátttöku barna og unglinga í æskulýðs - og tómstundastarfi. Við ræddum einnig nauðsyn þess að skoða leikskólagjöldin sérstaklega, þannig að reynt yrði að lækka þann lið í útgjöldum fjölskyldna.  

Það er ekki síst vegna þessara áherslna að nú er að störfum stýrihópur, sem bæjarstjórn skipaði, um mótun fjölskyldustefnu undir forystu Samfylkingarinnar. Matthildur Ásmundardóttir leiðir starf hópsins. Með henni í hópnum sitja Elín Magnúsdóttir og Gauti Árnason.

Þessar áherslur og hugmyndir, sem ég hef hér gert að umtalsefni, eru til skoðunar hjá stýrihópnum auk fjölda annarra atriða. Það er bráðnauðsynlegt fyrir sveitarfélag eins og Hornafjörð að vera alltaf vakandi fyrir því hvar skóinn kreppir í þessum málum og vera alltaf tilbúið til þess að leita leiða til þess að sveitarfélagið verði ennþá vænlegri staður fyrir fjölskyldur til að búa á.

Ég segi vænlegri vegna þess að það var eitt af því sem allir voru sammála um í kosningabaráttunni og eru væntanlega ennþá sammála um, en það er að Hornafjörður er mjög fjölskylduvænn staður. Við eigum bara að leita leiða til þess að gera hann fjölskylduvænni. Það er trú mín að tillögur stýrihópsins munu stuðla að því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband