Leita í fréttum mbl.is

Þjónustusamningur við Heilbrigðisráðuneytið

Á síðasta bæjarráðsfundi var ánægjulegt að heyra það að fundur bæjarstjóra með fulltrúum heilbrigðisráðueytisins í upphafi vikunnar hafi verið jákvæður og gagnlegur. Nú túlkum við stöðuna í fyrsta sinn í langan tíma þannig að við sjáum til lands í þessu máli, sem þrefað hefur verið um í meira en ár. Formlegar viðræður við ráðuneytið hófust í október 2006. Þá lögðum við fram okkar samningsmarkmið. Segja má að þetta tímabil hafi einkennst af mikilli bið. Á þessu tímabili höfum við þurft að bíða og bíða eftir svörum, fyrst úr heilbrigðisráðuneytinu og síðan úr fjármálaráðuneytinu. Þess vegna er ánægjulegt að sjá að það hyllir loksins undir lausn í þessu mikilvæga máli.

Í upphafi apríl fundum við að skriður komst á málið, eftir að bæjarstjórn og heilbrgiðis - og öldrunarráð Hornafjarðar hélt málþing um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, hér á Hornafirði. Því miður sá heilbrigðisráðherra sér ekki fært að mæta á þingið en Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis mætti og flutti ræðu ráðherra. Þá fengum við tækifæri til þess að kynna henni okkar mál og þann árangur sem náðst hefur á samningstímanum. Sama dag og málþingið var haldið, lagði Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, fyrirspurn fyrir heilbrigðisráðherra, um stöðu mála í samningaviðræðum við Hornfirðinga. Í svari ráðherra kom fram að ráðuneytið myndi funda með forsvarsmönnum sveitarfélagsins fljótlega og að verið væri að vinna að lausn málsins í ráðuneytinu.  

Sá fundur hefur nú verið haldinn og ljóst er að sá fundur gefur okkur tilefni til meiri bjarsýni en áður. Nú er mikilvægt að vinna hratt og örugglega að lausn málsins þannig að hægt sé að fara að huga að framtíðarstefnumótun heilbrigðis - og öldrunarþjónustunnar í sveitarfélaginu af meiri krafti og festu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband