Leita í fréttum mbl.is

Kæra dagbók

Fjórðu meirihlutaskiptin í borginni hafa auðvitað verið fyrirferðarmest í fréttum undanfarna daga. Mikið er fólk orðið leitt á þessum eilífu uppákomum í borgarstjórn og því stefnuleysi sem þar ríkir nú um stundir. Þessar farsakenndu uppákomur, sem algjörlega eru á ábyrgð borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, hafa nú tekið á sig enn ótrúlegri mynd. Borgarfulltrúar Íhaldsins hafa nú ákveðið að slíta meirihlutasamstarfi sem þeir lögðu mikið á sig til að koma á koppinn. Settu m.a. borgarstjórastólinn á uppboð til þess að sprengja samstarf Tjarnarkvartettsins. Þetta voru borgarfulltrúarnir tilbúnir að gera í janúar en núna 6 mánuðum síðar hafa þeir komist að því að þetta samstarf, sem þeir stofnuðu til með svo ærnum tilkostnaði, hafi verið komið á endastöð.

Það var rétt mat hjá Degi B. Eggertssyni og Svandísi Svavarsdóttur að stofna ekki til meirihlutasamstarfs með Sjálfstæðismönnum enda hefur borgarstjórnarflokkur þeirra - sérstaklega vegna innbyrðis deilna, sem komu upp á yfirborðið í Rei málinu - sýnt fram á það að hann er ekki stjórntækur. Það væri því ábyrgðarhlutur að stofna til meirihlutasamstarfs með slíkum flokki. Framsókn reyndist nógu örvæntingarfull, vegna nálægðar við núllpunktinn í skoðanakönnunum í Reykjavík, til þess að taka tilboði Íhaldsins. Það voru vonbrigði en kannski að einhverju leyti skiljanlegt í ljósi stöðunnar hjá flokknum í borginni.

Síðustu daga hefur einnig töluvert verið rætt um dagbækur fyrrum Moggaritstjórans, Matthíasar Johannessen. Þar opinberar hann trúnaðarsamtöl sín við ýmsa þekkta einstaklinga. Þessar uppljóstranir ritstjórans fyrrverandi hljóta að verða til þess að menn hugsa sig tvisvar um áður en þeir spjalla við einhvern af ritstjórn Morgunblaðsins þó það sé gert í trúnaði ef vera skyldi að sá héldi dagbók. Ég vona að Styrmir hafi ekki haldið dagbók og ef svo er að þá þyki honum vænna um almenning en svo að hann fari að deila henni með okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband