2.4.2008 | 17:58
Flokksstjórnarfundur og efnahagsmál
Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar um helgina var líflegur, skemmtilegur og gagnlegur. Sérstklega var forvitnilegt að hlýða á erindi og umræður um efnahagsmál og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir áréttaði það að staðan í efnahagsmálum sé grafalvarleg. Þörf er á að taka á þeim málum af festu. Í umræðunum kom gegnumsneytt fram að mikilvægt væri að skapa íslensku efnahagslífi trúverðugeika á nýjan leik. Sérskaklega var fjallað um hlutverk ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans í því verkefni. Allir voru líka sammála um það núna brýnast væri að stöðva framgang verðbólgunnar því hún kæmi verst niður á almenningi.
Mér fannst sérskaklega fróðlegt að hlýða á erindi Ólafs Darra Andrasonar hagfræðings ASÍ um stöðuna eins og hún er núna. Í hans máli kom fram að mikilvægt væri að stjórnvöld og almenningur í landinu tækju sér varðstöðu gegn þeim æsingi sem virtist hafa gripið um hjá verslunarmönnum og fleiri aðilum hvað varðaði verðhækkanir. Enn sem komið eru engar ástæður fyrir kaupmenn að vera að tala um 20 - 30% hækkun á næstu mánuðum eins og ekkert sé sjálfsagðara. Það má auðvitað ekki gerast að aðilar nýti sér þær verðbólguvæntingar sem nú eru í gangi til þess að hækka verð á vörum og þjónustu langt umfram það sem nauðsynlegt. Ef það gerist þá er að sjálfsögðu ljóst að forsendur þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru fyrir skemmstu er brostnar.
Hvað sem öðru líður þá er ljóst ríkisstjórnarinnar bíður ekki auðvelt verk að takast á við efnahagsvandann. Hvort sem við ætlum okkur að stefna að Evrópusambandsaðild og þar með upptöku Evru eða að halda í krónuna þá verðum við að takast á við þann vanda sem að okkur steðjar núna. Evrópusambandsaðild þarf ekki að vera forsenda eða ástæða þess að við tökumst á við efnahagsvandann. Almannahagsmunir einfaldlega kalla á það að tekið verði á málunum með markvissum og öflugum hætti hvort sem stefnan verður sett á Evrópu eða ekki. Ég trúi því hins vegar að yfirlýsing um það við ætlum að stefna að Evrópusambandsaðild gæti virkað vel í stöðunni sem nú er uppi. Slík ákvörðun myndi veita okkur aðhald og brýna menn í því verkefni að ná tökum á efnahagsmálunum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.