10.11.2007 | 14:16
Samgöngu - og viðskiptaráðherra væntanlegir
Það er mér mikið gleðiefni að geta greint frá því að næsta miðvikudag ætla samgöngu - og viðskiptaráðherra að kíkja í heimsókn til Hornafjarðar.
Meiningin er að þeir fundi með bæjarstjórn og byggingar - og skipulagsnefnd seinni partinn á miðvikudag. Þar verða málefni sveitarfélagsins eflaust rædd þar sem málefni sveitarfélaganna koma til með flytjast frá félagsmálaráðuneytinu yfir til samgönguráðuneytisins um áramót. Einnig verða samgöngumál innan sveitarfélagsins rædd í víðu samhengi. Án efa verður þar rætt um nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót sem og væntanleg Lónsheiðargöng.
Við munum vafalítið koma skoðun bæjarstjórnar áleiðis á því hvaða leið eigi að velja yfir Hornafjarðarfljótin. Bæjarstjórn hefur alla tíð verið einhuga um það að velja beri leið nr. 3 sem styttir þjóveginn mest sem og vegalengdir innan sveitarélagsins. Ekki má heldur gleyma því að sú leið fækkar gatnamótum mjög á þjóðveginum og bætir því umferðaröryggi landsmanna mjög mikið.
Mánudaginn áður en samgönguráðherra kemur verður bæjarstjórn búin að funda með Vegagerðinni þar sem ég býst við því að farið verði yfir stöðu málsins á þessum tímapunkti. Gaman verður að heyra hvar málið er statt núna og hvenær Vegagerðin telur að hún muni ljúka sinni vinnu.
Á fundinum með Samgönguráðherra verður vafalítið líka rætt um Lónsheiðargöng. Enginn sem keyrir um Hvalnes - og þvottárskriður þarf að velkjast að í vafa um það að þar er um að ræða vegstæði á þjóðvegi 1 sem ekki er boðlegur nú á tímum. Við í sveitarstjórninni munum því leggja á það áherslu, nú sem endranær, að eina varanlega lausnin á tengingu fyrir Hornafjörð við Austurland séu göng undir Lónsheiði. Vegurinn um Hvalnes - og þvottárskriður er farartálmi stóran hluta ársins og í rigningum er hann einfaldlega stórhættulegur akandi vegfarendum. Við leggjum því áherslu á að ráðuneytið og Vegagerðin fari strax að skoða þann möguleika að hefja framkvæmdir við Lónsheiðargöng. Sveitarfélagið hefur hafið sína skipulagsvinnu sem miðar að því að göngin verði sett að aðalskipulag sveitarfélagsins.
Á miðvikudagskvöldið kl. 20:00 mun Samfylkingin á Hornafirði standa fyrir opnum fundi í Nýheimum þar sem samgönguráðherra, Kristján L. Möller og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra munu flytja stutt erindi og sitja svo fyrir svörum.
Þar vona ég að viðskiptaráðherra muni láta gaminn geisa, eins og hann hefur gert að undanförnu, um vaxtamál og stöðu íslensku krónunnar. Ég held að skuldsettir krónuþrælar á Hornafirði (eins og annars staðar) hefðu gaman að því að hlusta á hann tala um þau mál.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.