Leita í fréttum mbl.is

Samfylkingin setur málefni barna í forgang

Samfylkingin kynnti á blaðamannafundi, sem haldinn var í einum af leikskólum borgarinnar, tillögur sínar í málefnum barnafjölskyldna.

Tillögurnar eru raunhæfar og koma til með gagnast barnafjölskyldum í landinu vel. Þetta er upphafið að endurreisn velferðarkerfisins undir forystu jafnaðarmannaflokks.

Í tillögunum er gert ráð fyrir hækkun á barnabótum m.a. með þvi að draga úr tekjutengingum. Þessi aðgerð mun að sjálfsögðu skila sér til lág - og millitekjuhópa í samfélaginu.

Einnig er gert ráð fyrir því að skólabækur verði ókeypis fyrir framhaldsskólanema. Þetta er mikilvægt skref til þess að jafna aðstöðumun framhaldsskólanema. Ég hygg að fjöldi þeirra framhaldsskólanema sem stundar mikla vinnu meðfram skóla hér á landi sé óvenju mikill miðað hin Norðurlöndin.

Að auki leggur Samfylkingin til tannvernd barna og unglinga á landinu verði komið í viðunandi horf. Skemmdar tennur barna á Íslandi eru biritingarmynd vanrækslu ríkisstjórnarinnar í velferðarmálum. Rotnandi tennur barnanna okkar sýna svo ekki verður um villst að þessi ríkisstjórn hefur engan áhuga á velferðarmálum.

Í málefnum barna hefur Samfylkingin nú tekið óskoraða forystu í umræðunni, lagt fram heildstæða aðgerðaáætlun en hún hefur líka sýnt það að þar sem Samfylkingin er við völd eins og í Hafnarfirði er henni treystandi til þess að hugsa um hag barnanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband