Leita í fréttum mbl.is

Mikið að gera hjá bæjarstjórn

Á bæjarstjórnarfundi í gær upplýstu fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar að óvenju mikið væri að gera hjá kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélagsins þessi dægrin. Ég get ekki sagt að það hafi komið mér á óvart. Hins vegar var nýstárlegt að annir væru notuð sem rök gegn því að setja mál, sem allir virtust efnislega sammála um á fundinum, í farveg.

Ég hef núna setið í bæjarstjórn Hornafjarðar í tæp fimm ár. Allan þann tíma hafa kjörnir fulltrúar og starfsmenn sveitarfélagsins verið störfum hlaðnir og af þeim sökum - miðað við röksemdafærslu gærdagsins - hef ég miklar áhyggjur af því hvenær hægt verður að fara í þessa vinnu.

Upplýst var um annir og tímaskort bæjarfulltrúa og starfsmanna í umræðum um tillögu sem bæjarfulltrúar minnihlutans lögðu fram þess efnis að fela að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að hefja strax vinnu við endurskoðun á rekstrarumhverfi leikskólanna á Hornafirði. Í tillögunni er kveðið á um að sérstaklega skuli kannaðir kostir þess að sameina rekstur leikskólanna undir einni yfirstjórn, þ.e. að sameina þá með svipuðum hætti og gert var með grunnskólana á síðasta kjörtímabili.

Í verkefnalista meirihluta bæjarstjórnar er kveðið á um að farið skuli í slíka vinnu á kjörtímabilinu. Þess vegna vekur það nokkra furðu að hann skuli ekki vera tilbúinn að hefja ferlið eins fljótt og auðið er svo hægt verði að hefja skólastarf næsta haust í samræmi við niðurstöður vinnunnar. Ekki er gott að bíða með áform eins og þessi - sérstaklega þegar þau liggja í loftinu og eru óumflýjanleg - vegna þeirrar óvissu sem það skapar fyrir stjórnendur, starfsfólk, nemendur og forráðamenn þeirra.  

Rétt er að geta þess að í tillögunni var gert ráð fyrir því að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd myndi skila niðurstöðum sínum til bæjarstjórnar í mars á næsta ári. Fresturinn er því nokkuð rúmur. Og því hlýtur maður að spyrja sig hversu langan tíma meirihluti bæjarstjórnar ætlar sér í verkefnið - nokkur ár?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband