Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Áherslur jafnaðarmanna

Það er mál manna er að vel hafi tekist til í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði að þessu sinni. Samstaða hefur myndast um það að bæta kjör þeirra verst stöddu, þ.e. þeirra sem ekki hafa notið góðs af launaskriði. Þetta var mjög skynsamleg ráðstöfun. En auðvitað þýðir það að einhverjir hópar njóta lítils af þessum samningum.

Það hefur væntanlega ekki verið vandalaust fyrir samningsaðila sigla samningunum endanlega í örugga höfn. En samningsaðilar hafa gert sér grein fyrir því að hversu mikilvægt það var að leiða þessi mál farsællega til lykta í því viðkvæma efnahagsástandi sem er nú um mundir. 

Töluverð bið varð á útspili ríkisstjórnarinnar í tengslum við samningana. Þegar það svo loksins kom virðast það hafa fallið í nokkuð góðan jarðveg. Þó er það auðvitað þannig eins og er með alla svona samninga að enginn fær allt sem hann vill.

Mér sýnist á öllu að aðgerðir ríkisstjórnarinnar og svo samningarnir sjálfir séu til fallnir að auka jöfnuð og stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar. Vonandi verður þetta til þess að hægt verður að hefja vaxtalækkunarferli.

En ég er sammála þessum hér um það hvaða áherslur eru ráðandi í þessu ríkisstjórnarsamstarfi.  


Heimsókn umhverfisráðherra

Heimsókn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra og Önnu Kristínar Ólafsdóttur, aðstoðarkonu ráðherra í gær var ánægjuleg og gagnleg. Anna Kristín er einnig formaður yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.

Daginn byrjuðum við á því að fara í Nýheima og kynna fyrir þeim starfsemina þar. Þar hittu þær m.a. Þorvarð, forstöðumanns Háskólasetursins sem þar er til húsa. Hann kynnti fyrir þeim ýmis verkefni á vegum stofnunarinnar sem tengjast með einum eða öðrum hætti stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Einnig hittu þær Rósu Björk Brynjólfsdóttur, framkvæmdastjóra ferðaþjónustuklasans á Suðausturlandi sem kallast Ríki Vatnajökuls. Hún ræddi við þær um ýmis mál tengd ferðamennsku og markaðssetningu svæðisins. Þau mál tengjast auðvitað mjög náið stofnun þjóðgarðsins hvað varðar almenna atvinnuuppbyggingu samfara stofnun þjóðgarðs. Undanfarin ár hefur verið mikill vöxtur í ferðaþjónustunni og við vonumst auðvitað til þess að hann aukist enn frekar með tilkomu þjóðgarðsins.

Í hádeginu funduðu þær með bæjarstjórn á Hótel Höfn. Á fundinum var farið yfir þau málefni sveitarfélagsins sem tengjast með beinum hætti umhverfisráðuneytinu. Að sjálfsögðu fór þó mestur tími í að ræða málefni þjóðgarðsins og bæjarstjórn kom á framfæri við ráðherra og formann yfirstjórnar óánægju sinni með þá niðurstöðu yfirstjórnarinnar að starf framkvæmdastjórans yrði ekki staðsett á Höfn. Um það mál urðu mjög hreinskiptnar og málefnalegar umræður. Einnig lagði bæjarstjórn mikla áherslu á það að settur yrði aukinn kraftur í viðræður við landeigendur sem hafa sýnt því áhuga að setja land inn í þjóðgarðinn. Töluverðrar óánægju hefur gætt meðal landeigenda vegna vinnubragða ráðuneytisins í þeim viðræðum. Á fundinum fengum við þær upplýsingar að frétta væri að vænta af þessum málum innan skamms og vonandi eru þær til þess fallnar að flýta fyrir lausn. Það á þó alveg eftir að koma í ljós. Eftir framgöngu ríkisstjórnarinnar í hinum svokölluðu þjóðlendumálum skal engan undra þótt landeigendur taki öllum tilboðum sem koma úr þeirri átt með ákveðnum fyrirvara.

Að loknum fundi með bæjarstjórn kynntu þær sér starfsemi Jöklasýningarinnar sem við vonumst til að falli inn í starfsemi þjóðgarðsins með tíð og tíma. Þar er sannarlega um að ræða veglegt framlag Austur - Skaftfellinga til þjóðgarðsins. Síðan funduðu þær með svæðisráði Suðursvæðis þjóðgarðsins og starfsfólki þjóðgarðsins á svæðinu. Þar voru rædd ýmis mál sem tengjast þjóðgarðinum með beinum hætti eins og t.d. gerð verndar - og öryggisáætlunar fyrir jökulinn og áhfrifasvæða hans.

Um kvöldið boðaði Samfylkingin á Hornafirði til opins stjórnamálafundar á Kaffi Horninu. Mæting á fundinn var góð og góðar umræður sköpuðust. Snörp gagnrýni á ákvörðun yfirstjórnarinnar vegna staðsetningar framkvmæmdastjóra yfirstjórnarinnar kom fram og mátti skilja það á fundarmönnum að þessi ákvörðun væri köld vatnsgusa framan í Austur - Skaftfellinga.

Þrátt fyrir að mestum tíma hafi verið varið til þess að ræða þessa ákvörðun yfirstjórnarinnar þá spunnust líka gagnlegar umræður um byggðamál almennt. Hjá fundarmönnum kom fram sú skoðun að eitt mikilvægasta skrefið í bættri byggðastefnu væri að leggja af hugsunina um kjarnabyggðir. Sú hugsun í byggðamálum hefur verið ríkjandi alltof lengi. Ég kom þeirri skoðun minni á framfæri að flokkur kenndur við jafnaðarstefnu gæri ekki og mætti ekki tileinka slíka hugsun og stefnu í byggðamálum í ríkisstjórnarsamstarfi.  

 


Umhverfisráðherra í heimsókn

Á morgun, miðvikudaginn 13. febrúar, kemur Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra í heimsókn til Hornafjarðar ásamt aðstoðarkonu sinni, Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem jafnframt er formaður yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Hér er sannarlega um þarfa og tímabæra heimsókn að ræða.

Enda hafa málefni Vatnajökulsþjóðgarðs verið töluvert til umræðu undanfarna daga, vikur og mánuði. Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur, frá því að hugmyndin um stofnun þessa stóra þjóðgarðs, kom fyrst fram litið á stofnun hans sem einn helsta aflvakann í atvinnu - og byggðaþróun svæðisins. Á undanförnum árum og áratugum hefur ferðaþjónustunni á svæðin vaxið fiskur um hrygg og við sjáum fram á að þjóðgarðurinn kemur til með að hleypa enn styrkari stoðum undir greinina.

Þess vegna urðu það okkur mikil vonbrigði að ekki skyldi hafa náðst sátt um það innan yfirstjórnarinnar að starfsstöð framkvæmdastjóra þjóðgarðsins yrði staðsett í sveitarfélaginu. Allar aðstæður fyrir framkvæmdastjórann eru til staðar á Hornafirði og starfsemi yfirstjórnar þjóðgarðsins yrði gríðarlega öflug viðbót við það frumkvöðla - og nýsköpunarstarf sem unnið er í Nýheimum ekki síst á sviði rannsókna og atvinnuþróunar í tengslum við ferðaþjónustu, útivist og þjóðgarða. Starfsstöð framkvæmdastjóran myndi falla eins og flís við rass að þessari starfssemi og það sem meira er, við jaðar Vatnajökuls sem þjóðgarðurinn dregur nafn sitt af. Tengsl framkvæmdastjórans við Vatnjökul og umhverfi hans verða hvergi betri en á Hornafirði. Það hljóta allir að sjá. 

Sveitarfélagið lætur ekki sitt eftir liggja í uppbyggingu þjóðgarðsins. Við höfum hug á því að láta hina glæsilegu jöklasýningu ganga inn í hinn nýstofnaða þjóðgarð. Þegar ný gestastofa þjóðgarðsins verður byggð upp í Stekkanesi er það okkar vilji að Jöklasýningin verði hluti þeirrar gestastofu. Þar væri sannarlega um að ræða veglegt framlag Austur - Skaftfellinga til þjóðgarðsins.

Opinn fundur með umhverfisráðherra og formanni yfirstjórnarinnar verður haldinn á Kaffi Horninu annað kvöld (mið. 13. feb.) kl. 20:00 á vegum Samfylkingarinnar á Hornafirði. Rétt er að hvetja alla þá sem hafa áhuga á málefnum Vatnajökulsþjóðgarðs, umhverfisins og stjórnmálanna almennt að fjölmenna á fundinn.


Best fyrir Villa að fara líka út um kjallarann

Svona eftir á að hyggja þá held ég að það hefði farið betur á því í gær ef Villi hefði verið samferða Hönnu Birnu og Gísla Marteini út um kjallarann í Valhöll. En kannski hafa þau stungið hann af? Það er ómögulegt að segja til um það.

Hún var hins undarlega einmannaleg tilvera hjá Vilhjálmi á ljósvakamiðlafundinum í gær. Af hverju í ósköpunum ráku Sjálfstæðismenn suma fréttamenn út af fundinum í Valhöll en ekki aðra? Furðuleg ráðstöfun. Enginn vildi sitja hjá honum og hinn vaski hópur sem stóð að baki honum að Kjarvalsstöðum fyrir skemmstu horfinn eins og töfrabrögðum hefði verið beitt.

Það er beinlínis orðið raunalegt og sorglegt að fylgjast stærsta stjórnmálaflokki borgarinnar og landsins. Hver hendin uppi á móti annarri og menn þar innanborðs virðast ekki sjá neina lausn á vandamálunum. En málið er að þeir eiga ekkert betra skilið eftir vinnubrögðin í kringum meirihlutaskiptin í janúar. Vandamálið er fullkomlega heimatilbúið.

Vona bara að símarnir hjá Hönnu og Gísli starti sér aftur þegar þetta fár verður um garð gengið.


Um Vatnajökulsþjóðgarð

Eftirfarandi grein birtist á vefmiðlum Hornafjarðar í dag: 

Vatnajökulsþjóðgarður - höfuðstöðvar

Undanfarna daga og vikur hefur farið fram töluverð umræða í sveitarfélaginu um stofnun Vatnjökulsþjóðgarðs. Ekki síst hefur umræðan verið tengd væntingum okkar Hornfirðinga til stofnunar þjóðgarðsins. Þar höfum við gengið hart fram í því að reyna að sannfæra aðra um að höfuðstöðvar þjóðgarðsins eigi að vera hér í sveitarfélaginu. Því miður virðist það ætla að verða niðurstaða yfirstjórnar þjóðgarðsins að svo verði ekki þrátt fyrir okkar kröfur. Fyrir þessu var barist innan yfirstjórnarinnar en okkar sjónarmið hlutu ekki brautargengi.

Farin var sú leið að auglýsa starf framkvæmdastjóra yfirstjórnarinnar án staðsetningar, sem er reyndar í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar, þ.e. að auglýsa störf án staðsetningar. Yfirlýst markmið með auglýsingu slíkra starfa er að fjölga störfum á landsbyggðinni enda segir í stjórnarsáttmálanum: „Skilgreind verði þau störf á vegum ríkisins sem hægt er að vinna án tillits til staðsetningar og þannig stuðlað að fjölgun starfa á landsbyggðinni."

Verður að samræmast markmiðunum með störfum án staðsetningar

 

Hægt er að færa rök fyrir því að ef starfið, sem hér um ræðir, endar á höfuðborgarsvæðinu sé beinlínis verið að vinna gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar. Við hljótum því að treysta því að starfið endi ekki á höfuðborgarsvæðinu. Gera verður þær kröfur til yfirstjórnarinnar að hún hagi vinnu sinni í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar.

Ekki má þó gleyma því að fleiri sveitarfélög eiga aðkomu að Vatnajökulsþjóðgarði en Sveitarfélagið Hornafjörður og eflaust hafa þau öll sínar væntingar til stofnunar þjóðgarðsins. Á hinn bóginn má öllum vera ljóst að ekkert sveitarfélag, í nálægð við væntanlegan þjóðgarð, hefur lagt jafn mikið af mörkum til þjóðgarðsins og Hornafjörður. Nægir í því tilliti að nefna Jöklasýninguna okkar og áherslu á atvinnuuppbyggingu í tengslum við þjóðgarðinn. Í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar kemur glöggt fram hversu mikla áherslu sveitarfélagið leggur á Vatnajökulsþjóðgarð en í aðgerðum ríkisstjórnarinnar er gert ráð ráðningu tveggja nýrra starfsmanna í frumkvöðla - og háskólasetrinu í Nýheimum með áherslu á styrkingu starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ekki þarf annað en að líta í kringum sig innan marka sveitarfélagsins til þess að átta sig á því að starfsstöð yfirstjórnarinnar á heima hér í sveitarfélaginu. Vatnajökull er alltumlykjandi og hefur mótað líf og lífsskilyrði íbúa Austur - Skaftafellssýslu frá upphafi vega. Af þeim sökum yrði að mínu viti um alvarlegt stílbrot að ræða ef framkvæmdastjóri þjóðgarðsins yrði staðsettur einhvers staðar annars staðar en á Hornafirði. Tengsl framkvæmdastjórans við þjóðgarðinn verða hvergi betri en hér.

Ráðherra og formaður í heimsókn

Umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, sem jafnfram er formaður yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, eru væntanlegar í heimsókn til Hornafjarðar næsta miðvikudag. Í heimsókn þeirra munu þær funda með bæjarstjórn og kynna sér starfsemi helstu stofnana svæðisins. Þær munu t.d. kynna sér metnaðarfull verkefni Háskólasetursins í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð. Um kvöldið verður síðan haldin opinn fundur á Kaffi Horninu á vegum Samfylkingarinnar á Hornafirði kl. 20:00. Vill Samfylkingin á Hornafirði hvetja allt áhugafólk um umhverfismál, Vatnajökulsþjóðgarð og stjórnmálin almennt til þess að mæta á fundinn.

Árni Rúnar Þorvaldsson

Forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar og oddviti Samfylkingarinnar


Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar hjá Vilhjálmi

Mér sýnist á öllum fréttaflutningi að það styttist í afsögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, núverandi borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins. Hann er sagður íhuga pólitíska stöðu sína og er búinn að funda með formanninum.

Eina sem ég held að standi í vegi fyrir því að af þessu geti orðið strax er að Sjálfstæðismenn þurfa að gera upp við sig hver eigi að taka við af Villa sem þeirra forystumaður í borginni. Í bakherbergjunum fer fram valdabarátta á milli Hönnu Birnu og Gísla Marteins um það hver taki við af Vilhjálmi. Þegar úrslitin liggja fyrir í þeirri baráttu mun Vilhjálmur stíga niður af sviðinu.

Í mínum huga er ljóst að hvorugt þeirra er beinlínis trúverðugt til þess að taka að sér þetta verkefni eftir að hafa tekið þátt í koma núverandi meirihluta á koppinn sem gerði ráð fyrir því að Vilhjálmur tæki við sem borgarstjóri. Á sama tíma voru þau á fullri ferð í vinnu stýrihóps Svandísar að fara gaumgæfilega yfir embættisafglöp í borgarastjóratíð hans.


Hvernig geta Hanna Birna og Gísli Marteinn stutt Villa áfram?

Það er með hreinum ólíkindum eftir það sem á undan er gengið að Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson ætli að styðja Vlhjálm Þ. Vilhjálmsson í verða aftur borgarstjóri. Þau hafa í raun skrifað undir það að hann hafi brugðist trausti þeirra og borgarbúa.

En núna, í gegnum eitthvert ótrúlegasta valdrabrölt í íslenskri pólitík, ætla þau að klappa Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson aftur upp í borgarstjórastólinn með sérstakri aðstoð frá Ólafi F. Magnússyni, sem skv. síðustu mælingum, nýtur stuðnings 16 % borgarbúa.

Ég veit hreinlega ekki hvort er meira axarskaft:

Að gera það sem Hanna Birna og Gísli Marteinn skrifa upp á að Vilhjálmur hafi gert eða að klappa mann með slíka afrekaskrá aftur upp í borgarstjórastólinn.

Eins og staðan er í dag á Sjálfstæðisflokkurinn ekkert erindi í stjórn borgarinnar.


Jákvæðir bloggarar

Á síðasta bæjarstjórnarfundi var töluvert rætt um fréttaflutning í sveitarfélaginu. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins taldi að fréttaflutningur af vettvangi sveitarstjórnarmálanna væri hlutdrægur. Virtitst bæjarfulltrúinn draga þá ályktun að bloggsíða bæjarstjóra hefði of mikil áhrif á fréttaflutninginn. Taldið bæjarfulltrúinn m.a. að skrif bæjarstjórans á hans eigin bloggsíðu væru of jákvæð.

Nú er ég einn af virkum lesendum síðunnar hans Hjalta og get tekið undir það með bæjarfulltrúanum að pistlarnir hans einkennast af jákvæðni og gleði þannig að manni er oft hlátur í huga. Ég er nú þannig gerður að ég tel þessa eiginleika í pistlum bæjarstjórans vera heldur til bóta en greinilegt er að þetta á ekki við alla.

Meira að segja misvitrir bæjarfulltrúar gera sér grein fyrir því að bloggsíða bæjarstjóra er á hans eigin ábyrgð þar sem hann leitast við að segja bæjarbúum og öðrum frá þvi helst sem er á döfinni í starfi hans og sveitarfélaginu hverju sinni. Fleiri hafa tekið upp þetta háttalag t.a.m. æðsti prestur sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum og svo hefur einn tiltekinn ráðherra kenndur við dómsmál bloggað af miklum eldmóð í einhver ár.

Ef ritstjórnir annarra miðla kjósa að nýta sér skrif bæjarstjórans í sínum miðlum þá held ég að allir, og þar með taldir misvitrir bæjarfulltrúar, átti sig á því að ritstjórnirnar gera það á sína ábyrgð. Bæjarstjóri getur ekki stýrt því og hefur eftir minni bestu vitund ekki áhuga á því enda starf bæjarstjórans erilsamt.


Frummatsskýrsla Vegagerðarinnar

Síðustu dagar og vikur hafa að miklu leyti farið í það að kynna sér niðurstöður Vegagerðarinnar í frummatsskýrslu hennar í tengslum við nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós og ýmsa spurningar vakna við lestur skýrslunnar. Vegagerðin ætlaði að halda opinn kynningarfun um málið í gær í Nýheimum en því miður þurfti að fresta honum þar sem ekki var hægt að fljúga vegna veðurs. Ákveðið hefur verið að halda fundinn að viku liðinni, fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20:00.  

Á bæjarstjórnarfundi á miðvikudaginn var samþykkt efitrfarandi bókun um málið sem bæjarstjórn Hornafjarðar mun senda inn til Skipulagsstofnunar sem athugasemd við frummatsskýrslu Vegagerðarinnar:

Niðurstaða matsvinnu Vegagerðarinnar vegna nýs hringvegar um Hornafjörð er að mæla með svokallaðri leið 1.  Um þrjár meginleiðir er að ræða skv. tillögu Vegagerðarinnar en auk þeirra leggur Vegagerðin fram mismunandi útfærslu á þessum þremur leiðum, sbr. bls. 13 í frummatsskýrslu. Umhverfisáhrif, umferðaröryggi og greiðfærni ráða mestu um afstöðu Vegagerðarinnar. Bæjarstjórn Hornafjarðar er ósammála niðurstöðu Vegagerðarinnar í veigamiklum atriðum og leggur þar til grundvallar auknar vegstyttingar, umferðaröryggi og að draga sem mest úr áhrifum á hefðbundin landbúnaðarafnot. 

Skipta má fyrirhugaðri framkvæmd í þrennt. Í fyrsta lagi liggur fyrirhugð leið um sveitina Mýrar sem er vestan Hornafjarðarfljóta. Í öðru lagi um Skógey sem er á milli Hornafjarðarfljóta og Hoffellssár. Í þriðja lagi liggur leiðin um Nesjasveit sem er austan Hornafjarðarfljóta. 

Á Mýrum tekur Vegagerðin leið 1 umfram aðrar leiðir sem er með öllu óskiljanlegt vegna umferðaröryggis þar sem leið 1 liggur á sama stað og núverandi vegur við Holtabæi í gegnum þétta byggð og atvinnustarfsemi og sveigir þá til suðurs á milli Holts og Tjarnar.  Bæjarstjórn Hornafjarðar telur mikilvægt að nýtt vegstæði liggi eins og leið 3 gerir ráð fyrir, þ.e. að sveigja frá núverandi hringvegi um 2,5 km fyrir austan Hólm og þaðan liggur hún sunnan við Stóraból og þverar Hornafjarðarfljót við móts við Skógey.  Með þessu fækkar vegtengingum stórlega og eykur öryggi íbúa og vegfarenda.

Í matsvinnu Vegagerðarinnar segir á bls. 14 að hvaða leið sem sé valin um Skógey séu áhrifin sambærileg.  Undir þetta mat getur Bæjarstjórn Hornafjarðar tekið.

Í Nesjum liggur leið 1 rétt norðan við ósa Laxá og þverar hana rétt neðan við  Borgir og sveigir inn á núverandi hringveg við Árnanes.  Bæjarstjórn Hornafjarðar vill benda á að á þessum slóðum er afar þétt byggð og mikil landbúnaðarstarfsemi.  Á þessari leið liggur leiðin, skv. tillögu Vegagerðarinnar, yfir skeiðbraut hestamanna, yfir gróin tún í Borgum og yfir ræktunarlönd Akurness og Seljavalla.  Ennfremur mun þessi leið ekki auka umferðaröryggi fram yfir núverandi ástand því vegtengingar verða jafnmargar og áður.  Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á að vegurinn um Nesjasveit liggi sunnan við Árnanes eins og leið 3 gerir ráð fyrir.  Sú veglagning styttir vegalengdir mest innan héraðsins og eykur umferðaröryggi stórlega umfram tillögu Vegagerðarinnar. 

Stytting vegalengda innan Sveitafélagsins Hornafjarðar er grundvallaratriði að mati Bæjarstjórnar Hornafjarðar. Sú umtalsverða stytting sem verður samfara því að fara leið 3 samanborið við að fara leið 1 er það mikil að Bæjarstjórn Hornafjarðar telur að almannahagsmunir liggi við. 

Bæjarstjórn Hornafjarðar er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Þar er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem geta talist einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún yfir nær samfelldar sjávarfitjar á milli Árnaness og Dilksness. Þá liggur hún mun nær Árnanesbæjunum en leið 3. Bæjarstjórn Hornafjarðar hafnar því að leið 2 verði farin.

Bæjarstjórn Hornafjarðar telur einnig einsýnt að leið 3 hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leið 3 sker jarðir landeigenda í sveitafélaginu minnst þeirra þriggja leiða sem í mati eru. Helsti munur á milli leiðanna felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er á náttúruminjaskrá. Á hinn bóginn liggur leið 3 ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2. Einnig bendir flest til þess að leið 3 hafi ekki jafn mikil áhrif á landslag og leið 2.  

Til að milda umhverfisáhrif leiðar 3 leggur sveitarfélagið til að leiðin liggi ekki yfir Skarðsfjörð eins og núverandi tillaga gerir ráð fyrir heldur liggja austan Hafnarvegar í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Þessi leið mun ekki hafa umhverfisáhrif á Skarðsfjörð. 

Leiðir 2 og 3 hafa það báðar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Bæjarstjórn Hornafjarðar telur það mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitafélaginu verði auglýst. 

Í frummatsskýrslu kemur fram á bls. 22 að kostnaður leiðar 1 sé samtals 2,324 milljarða kr. en leiðar 3 samtals 2,977 milljarða kr.  Sveitarfélagið hefur áður gert athugasemdir við fjárhagslegt mat þessara kosta og telur útreikninga Vegagerðarinnar ótrúverðuga.  Í útreikningum á kostnaði á leið 1 er ekki teknar inn í endurbætur á vegarkaflanum frá Hólmi að Holtum og einnig frá Árnanesi að Haga. Til að samanburður á milli valkosta Vegagerðarinnar sé sanngjarn þarf að taka endurbætur á þessum köflum með í dæmið.   Fjárhagslegur munur á milli þessara kosta er því hverfandi að mati bæjarstjórnar og getur því ekki legið til grundvallar þegar endanlegt vegstæði verði valið.

Það er því niðurstaða Bæjarstjórnar Hornafjarðar að leið 3 í tillögum Vegagerðarinnar sé besti kosturinn af þeim leiðum sem hún leggur til að verði metnar í framkvæmdamati. Ekki síst vegna bætts umferðaröryggis sem og verulegra styttingu á vegalengdum innan sveitafélagsins sem leið 3 hefur í för með sér. Niðurstaða Bæjarstjórnar Hornafjarðar er því að leið 3 verði fyrir valinu með þeirri breytingu að ekki verði farið út í Skarðsfjörð með veginn.

Rétt er að hvetja alla sem áhuga hafa á málinu að kynna sér niðurstöðu í Frummatsskýrslunni sem og forsendur niðurstöðunnar.Hægt er að gera það hér, hér og hér.  Eins og sjá má á bókuninni hér að ofan þá er bæjarstjórn algjörlega mótfallin niðurstöðu Vegagerðarinnar og ætti það ekki að koma nokkrum manni á óvart miðað við umræðuna.


Stýrihópur Svandísar

Mér finnast niðurstöður stýrihóps Reykjavíkurborgar um Rei - málið um margt mjög merkilegar. Hins vegar fannst mér spyrillinn í Kastljósi í gær eyða helst til miklum tíma í að leggja fyrir Svandísi spurningar sem ekki komu þessari skýrslu á nokkurn hátt við. Það getur ekki verið í verkahring stýrihóps, sem skipaður er pólitískt kjörnum fulltrúum, að ákveða það hvort embættismenn hjá OR verði látnir sæta ábyrgð. Einnig getur svona hópur aldrei látið einstaklinga sæta pólitískri ábyrgð.

Ef fyrrverandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, telur að hann þurfi að endurskoða stöðu sína í ljósi þess hvað kemur fram í skýrslunni um umboðsleysi hans þá er það bara eðlilegt en stýrihópurinni getur aldrei farið fram á það. Sú endurskoðun verður fyrst og fremst að fara fram hjá honum og félögum hans í borgarstjórninni hjá Sjálfstæðisflokknum.

Ég held að spyrillinn hefði átt að gera meira úr niðurstöðum stýrihópsins. Þegar ég les niðurtöðurnar finnst mér meginlínan vera sú að það þurfi að skerpa á því að Orkuveitan er opinbert fyrirtæki og á starfa á þeim grunni.  Bæta þurfi upplýsingastreymi til kjörinna fulltrúa, að skýra þurfi umboð annars vegar embættismannanna og kjörinna fulltrúa í stjórninni hins vegar og að eigendaaðhaldið verði virkara. Einnig er alveg ljóst að það er þverpólitísk sátt um það að Orkuveitan eigi að vera 100% í eigu opinberra aðila og það þykja mér mikilvæg tíðindi.  

Niðurstöðurnar eru um margt forvitnilegar og ég held að þær ættu að geta orðið mönnum vegvísir um bætt vinnubrögð til framtíðar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband