14.10.2009 | 22:53
Áhrif kreppunnar á opinbera þjónustu á landsbyggðinni
Í þeirri niðurskurðarhrinu, sem bíður stjórnvalda í kjölfar hins ársgamla efnahagshruns, á það að vera eitt af leiðarljósum stjórnvalda að tryggja aðgang landsmanna að opinberri þjónustu óháð búsetu. Mikill uggur er í mörgum á landsbyggðinni - og þá ekki síst sveitarstjórnarmönnum - að höggvið verði of nærri grunngerðinni í samfélaginu í niðurskurðinum. Finnst mörgum það ósanngjarnt þar sem mörg svæði á landsbyggðinni tóku lítinn sem engan þátt í hinu bólukennda hagkerfi sem síðan keyrði efnahagslífið okkar í þrot. Hjá okkur er því lítið til að klípa af enda hafði lítil fita safnast á landsbyggðarkroppinn í góðærinu.
Hins vegar getur mikill niðurskurður á þjónustu á viðkvæmum svæðum haft alvarlegar afleiðingar fyrir samfélög, sem alltaf eru í baráttu fyrir tilverurétti sínum. Þetta er eitthvað sem ríkisstjórn, fjárlaganefnd og Alþingi ættu að hafa í huga áður en gengið verður endanlega frá fjárlögum næsta árs.
Á sama tíma gera allir sér grein fyrir því að tekjugrundvöllur ríkissjóðs hefur stórskaðast og það mun taka einhvern tíma til þess að ná jafnvægi í tekjum og gjöldum ríkissjóðs. Til þess að það geti gerst á sem skemmstum tíma er mikilvægt að ríkisstjórnin og löggjafinn haldi vel áætlun stjórnvalda og AGS um aðlögun í ríkisrekstri.
Allir skilja því að ekki er mikið svigrúm til að hefja mörg ný verkefni á vegum hins opinbera - bæði hvað varðar rekstur og framkvæmdir - eins og árar hjá okkur núna. Af þeim sökum er enn mikilvægara en ella að standa vörð um þá opinberu þjónustu sem nú þegar er til staðar á landsbyggðinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Athugasemdir
Ef sveitarstjórnarmenn - í öllum flokkum - fara ekki að kynna sér af ábyrgð - villuljós Hafrannsóknarstofnunar - þá verða varla miklar framfarir á landsbyggðinni..... - hvorki í opinberri þjónustu eða á öðrum sviðum..... www.kristinnp.blog.is
Kristinn Pétursson, 14.10.2009 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.