30.11.2008 | 23:56
Þjóðin fái að kjósa um ESB...
var forsíðufyrirsögn Moggans í dag - haft eftir fyrrverandi varaformanni Sjálfstæðisflokksins og núverandi forstjóra Landsvirkjunar. Sannarlega orð í tíma töluð úr þeirri átt og vonandi það sem koma skal fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins í janúar - þó vont sé að bíða svo lengi eftir ákvörðun og ekki er víst hver niðurstaðan verður. Ekki er eftir neinu að bíða að hefja aðildarviðræður og þjóðin fái síðan að kveða upp sinn dóm.
Alþjóðlega fjármálakreppan, sem skekið hefur heiminn, hefur leikið litla Ísland grátt. Það gerir okkar vanda hins vegar dýpri en annarra að yfir okkur gengur nú dýpri gjaldeyriskreppa en við höfum áður kynnst.
Eins og ágætur hagfræðingur sagði á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í nóvember, þá dó krónan 8. október - tók tvo dauðakippi og dó svo. Um þetta deilir enginn lengur. Krónan er dáin. Nú er bara rifist um leiðir frá krónunni - einkum er rifist um einhliða upptöku annars gjaldmiðlis eða inngöngu í ESB og upptöku Evru í kjölfarið.
Fórnarkostnaðurinn af svokallaðri sjálfstæðri peningamálastefnu er orðinn gríðarlegur og skaðar samfélagið allt. Það er með hreinum ólíkindum að stjórnmálaflokkar séu á þessum tímapunkti ekki tilbúnir til þess að gefa kjósendum tækifæri til þess að kveða upp sinn dóm um aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er hinn lýðræðislegi farvegur - leið til þess að leysa úr þeim hnút sem stjórnmálaflokkarnir virðast ekki geta leyst úr.
Niðurstaðan af sjálfstæðri peningamálastefnu í galopnu alþjóðlegu hagkerfi liggur fyrir. Hefur einhver áhuga á að ganga þann veg aftur? Ég held ekki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.