17.3.2008 | 21:37
Í frjálsu falli
Svona líta fyrirsagnirnar um íslensku krónuna út í dag í netmiðlunum. Hún lækkaði á einum degi um rúm 7%. Edda Rós Karlsdóttir yfirmaður greiningardeildar Landsbankans segir að krónan lækki svo mikið að líkur á vaxtahækkun hafi aukist vegna verðbólgumarkmiða Seðlabanakns. Flestum ætti að vera kunnugt að stýrivextir hér á landi eru þeir hæstu sem þekkjast hjá iðnvæddum þjóðum. Þessi snögga lækkun krónunnar í dag og síðustu daga hlýtur að leiða hugann að peningamálastefnu Seðlabankans.
Egill Helgason varpar fram þeirri spurningu hvort þurfi að reka Seðlabankastjórann. Ekki veit hvort þetta er réttmæt eða tímabær spurning og mun ekki gerast dómari í því máli. Hitt er aftur annað mál að atburðarás dagsins í dag og síðustu daga hlýtur að kalla á endurskoðun á stefnu bankans og e.t.v. endurskoðun á lögum um Seðlabankann. Það hljóta að vera þær spurningar sem eftir standa í lok dags og hvort bankinn valdið hlutverki sínu.
Til lengri tíma hlýtur líka flestum að vera ljóst að krónan hefur þjónað sínu hlutverki og dugir ekki lengur sem gjaldmiðill í ólgusjó alþjóðlegs fjármálaumhverfis. Og eins og alltaf er það almenningur sem borgar brúsann af krónunni (þessari ömurlegu krónu eins og Guðmundur Ólafsson komst svo skemmtilega að orði í Silfrinu).
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.