Leita í fréttum mbl.is

Endurþjóðnýting

Í dag lærði ég nýtt orð. Mér finnst alltaf svolítið skemmtilegt þegar það gerist. Orðið lærði ég þegar ég las skemmtilega grein eftir Þorvald Gylfason sem m.a. fjallaði um íslensku bankana. Orðið var endurþjóðnýting. Þar kemur fram, sem auðvitað er sjálfsagður sannleikur, að bankarnir afsöluðu sér ríkisábyrgð um leið og þeir voru einkavæddir á útsöluprís eins og Ríkisendurskoðun vitnaði til um. Þó er rétt í ljósi aðstæðna hjá bönkunum nú um stundir að minna á þetta.

Útlitið á fjármálamarkaði er ekkert sérstaklega gott. Ef marka má fréttir þá virðist staða íslensku bankanna ekki upp á marga fiska. Niðursveiflan á undradrengjunum, sem lofsamaðir voru um allar grundir fyrir að kunna betur en allir aðrir að búa til pening úr pening, er hafin að því er virðist.  

Ég er sammála Þorvaldi Gylfasyni varðandi það að bankarnir geta ekki verið þekktir fyrir það, eftir þá óheftu frjálshyggju sem menn þar innanborðs hafa boðað, að hlaupa undir pilsfald ríkisvaldsins. Að hans mati er eina mögulega útrétta hjálparhöndin frá hendi ríkisins tímabundin endurþjóðnýting.

Hitt atriðið sem Þorvaldur ræddi í grein sinni var hin undarlega umræða um ESB - og Evrumál í landinu. Sú umræða virðist af einhverjum orsökum alltaf vera föst í einhverjum bullhjólförum og almenningi er aldrei gefið tækifæri á að kynna sér málin á hófstilltan og skynsaman hátt. Um leið og einhver leyfir sér að nefna ESB aðild þá eru einhverjir snillingar tilbúnir hrópa, fullveldisafsal eða eitthvað þaðan af verra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband