22.4.2007 | 17:36
Fjármálaráðherra í kröppum dansi
Í dag var kjördæmaþátturinn á RÚV tileinkaður Suðurkjördæmi. Þar voru oddvitar listanna mættir til þess að ræða málefni kjördæmisins. Allir oddvitarnir voru mættir að Guðna Ágústssyni undanskildum. Í hans stað var stjórnarandstæðingurinn Bjarni, á þing þó hann skrolli, Harðarson.
Heilt yfir þá stóð Björgvin G. Sigurðsson, oddviti okkar Samfylkingarmanna sig langbest í umræðunum, málefnalegur og kjarnyrtur. Atli Gíslason stóð sig vel að vanda, skeleggur og kemur sínum málum alltaf á framfæri. Bjarni Harðarson frá Framsóknarflokki stóð sig líka vel en vandinn við hann er að maður mætti halda að hann hefði setið í stjórnarandstöðu undanfarin 12 ár en svo er auðvitað ekki. Skemmtilegt var að fylgjast með átökum Bjarna og Árna Mathiesen í þættinum um samgöngumál.
Áberandi var hversu illa fjármálaráðherranum, Árna M. Mathiesen leið í þættinum. Greinilegt var að þjóðlendumálin, samgöngumálin og atvinnustefna ríkisstjórnarinnar reyndust honum afar erfið og hann átti eftir að svara fyrir þessi mál. Ekki bætti svo úr skák fyrir Árna að Framsóknarflokkurinn var lentur í stjórnarandstöðu í þættinum og kom það mörgum á óvart. Bjarni taldi m.a. að Íhaldið hefði ákveðið að slá hugmyndir um göng til Eyja út af borðinu og helst ekki viljað ræða þessar hugmyndir af þeirii ástæðu að Árni Johnsen annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefði sett hugmyndina á dagskrá. Mathiesen gerði enga tilraun til þess að reyna að svara þessum málflutningi Bjarna.
Vanrækslusyndir Íhaldsins í samgöngumálum birtast okkur um allt kjördæmið. Nægir þar að nefna Suðurstrandarveg og dæmalausan vandræðagang í kringum tvöföldun Suðurlandsvegar. Ekki þarf heldur að minna neinn á það ófremdarástand sem er í samgöngumálum Eyjamanna. Sjálfstæðismenn hafa haft 16 ár í Samgönguráðuneytinu til þess að leysa úr þessum málum en ekkert hefur gerst.
Í upphafi þáttarins var birt glæný skoðanakönnun Capacent Gallup. Í henni staðfestist að Samfylkingin er á gríðarlegri siglingu um þessari mundir. Við mælumst með tæplega 25 % fylgi líkt og kom fram í gær í kjördæmþættinum sem tileinkaður var Reykjavík Suður. Að fara úr 18 % fylgi í 25 % á stuttum tíma er gríðargóður árangur og gefur góð fyrirheit um framhaldið.
Við höldum okkur fjórum þingmönnum í Suðurkjördæmi og verðum með fyrsta þingmann kjördæmisins. Ég er sannfærður um það.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Athugasemdir
Amma mín segir, hverjum þykir sinn fugl fagur, þó hann sé bæði fjaðralaus og magur.
Ekki þótti mér Björgvin standa sig vel, nema í að gjamma frammí. Hann er góður í því.
HP Foss, 22.4.2007 kl. 22:01
Ég er ekki viss með það að við náum fyrsta þingmanni kjördæmisins. Ég held að við náum hins vegar fjórum mönnum, en til þess verðum við að fá Árna johnsen meira í sviðsljósið, hann er vel falinn.
Sveinn Arnarsson, 22.4.2007 kl. 22:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.