Leita í fréttum mbl.is

Tökum ekki þátt í þagnarbandalagi um Evrópumál

Mikið gladdi það mitt litla hjarta að sjá það haft eftir Ingibjörgu Sólrúnu, mínum ágæta formanni að Samfylkingin ætlaði ekki að taka þátt í þagnarbandalagi um Evrópumál. Þetta mun hún hafa sagt á aðalfundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Ég tek heils hugar undir með Ingibjörgu að Við megum ekki láta aðra stjórnmálaflokka þegja þetta framfaramál í hel.

Hún talaði einning um að Samfylkingin hefði sett tvö stór mál á dagskrá núna með stuttu millibili. Annars vegar alltof hátt matvælaverð á landinu og hins vegar upptöku Evrunnar og málefni Evrópubandalagsins. Við höfum talað fyrir því að innganga í ESB hefði þau áhrif að þeir okurvextir sem íslenskur almenningur býr við fari lækkandi. Þetta er eitthvað sem aðrir stjórnamálaflokkar vilja ekkert vita af. Við höfum líka talað fyrir því að innganga í ESB og upptaka Evrunnar myndi færa okkur lægra verðlag á Íslandi. Þetta er líka eitthvað sem aðrir stjórnmálaflokkar vilja ekkert vita af.

Evrópumálin verður að ræða af alvöru í þessari kosningabaráttu. Okurvaxtapíndur almenningur á Íslandi á það skilið. Jafnaðarmenn munu að sjálfsögðu leiða þá umræðu líkt og verið hefur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þetta tal Ingibjargar um ,,Þagnarbandalag um Evrópumál" er út í
hött. Evrópumálin hafa verið, eru og verða á dagsskráð íslenzkra
stjórnmála svo lengi sem einhver áhugi er á slíku.

Hins vegar virðist sem betur fer að áhugi meðal íslenzkra kjósenda að Ísland gangi í Evrópusambandið og taki upp evro vera takmark-
aður og fari  minnkandi. Þetta kom fram í skoðanakönnun Fréttablaðsins 24 jan s.l. Athygli vakti hversu mikil andstaða er meðal
Samfylkingarfólks við Evrópusambandsaðild, en skv. þessari könnun
voru 41.2 samfylkingarfólks á móti aðild en 50.5 fylgjandi.
Þannig að ekki einu sinni innan síns eigin flokks á Ingibjörg sterkan
stuðning við þau fráleitu áform sín að troða Íslandi inn í ESB og taka
upp evru.

Það er barnaskapur að kenna íslenzku krónunni um hátt matarverð
og háum vöxtum. Hvorttveggna er pólitiskt úrlausnarefni alveg
ótengd evru og ESB.  Spurning um efnahagsstjórn og aðhald í
ríkis- og peningamálum. Og þegar það bregst er ómetanlegt að
hafa sjálfstæðan gjaldmiðil til að afrugla slíkt misvægi. Með evru
væri það ekki fyrir hendi, sem gæti kallað á mikla erfiðleika meðal
atvinnulífsins og bullandi atvinnuleysi. Það er kannski það sem
Ingibjörg og Co eru að kalla eftir. Þá hefur hún og aðrir Evrópusinnar
ALDREI svarað  því hvernig íslenzk yfirráð yfir fiskimiðunum verði tryggð  til frambúðar með inngöngu í Evrópusambandið. Hvernig á t.d að koma í veg fyrir það að erlendir aðilar eignist meirihluta í íslenzkum
útgerðum, og þar með kvótann, og geti þar með siglt með hann til
Evrópu án viðkomu á Íslandi og þar með eytt virðisaukanum af
honum í íslenzka þjóðarbúið? Auk þess myndum við glata öllum
viðskiptasamningsrétti Íslands við öll lönd utan Evrópusambandsisns.
Já við myndum stórskerða okkar fullveldi og sjálfstæði við inngöngu
í Evrópusambandið, auk þess að hafa þar lítils sem engin áhrif.
Innan við 1% atkvæða á Evrópuþinginu.

Nei sem betur fer er stuðningur þjóðarinnar við skoðanir Ingibjargar
og forystu    Samfylkingar mjög dvínandi. Og fylgir hrynur af 
Samfylkingunni nú í kjölfar þingkosninga. Það er það gleðilegasta
í þessu öllu! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.1.2007 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband