7.1.2007 | 22:02
Sammála eða ósammála
Eru allir í Samfylkingunni í Hafnarfirði sammála um stækkun álversins í Straumsvík?
Þessa spuriningu lagði aðstoðarmaður borgarstjóra fyrir Össur Skarphéðinsson í silfrinu í dag. Þetta sýnir svo ekki verður um villst á hvers lags villigötum íslensk pólitík er. Krafa flokksmanna annarra stjórnmálaflokka um allir í Samfylkingunni séu sammála um ákveðin málefni er alltaf til staðar í öllum málum. Ekki eru sömu kröfur til annarra flokka varðandi samræmingu skoðana. Nema þar sé um að ræða svo einsleitar hjarðir að þar séu allir sammála um alla skapaða hluti.
Það er beinlínis fjarstæðukennt að ætla nokkrum flokki það að allir séu sammála um jafn stórt mál og stækkun álvers í Straumsvík nema e.t.v. Vinstri Grænum. Þetta er eitthvað sem Samfylkingin í Hafnarfirði hefur áttað sig á og ætlar að eftirláta íbúum Hafnarfjarðar það að ákveða hvort af stækkun álvers verður. Samfylkingin er lýðræðisflokkur og þess vegna ákveður hún að fara þessa leið.
Ég er ekki nokkrum vafa um það að innan Sjálfstæðisflokksins eru skiptar skoðanir um stækkun álversins. Skárra væri það nú í stórum og öflugum stjórnmálaflokki. Ekki ætla ég þeim að vera svo einsleit og skoðanalaus hjörð að þeir skiptist ekki skoðunum um þetta stóra mál.
En eitt geta allif flokkar sameinast um og það er að reyna að gera Samfylkinguna ótrúverðuga. Það er eitthvað sem Vinstri Grænir, Íhaldið og Framsókn geta verið sammála um að gera. Því ekkert hræðast þessi stjórnmálaöfl jafn mikið og stóran og öflugan jafnaðarmannaflokk.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.1.2007 kl. 20:35 | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.