2.3.2009 | 23:37
Traustið endurheimt
Sendi þennan pistil á miðla í dag:
Öllum ætti að vera ljóst að rof hefur orðið á milli stjórnvalda og almennings. Stjórnvöld njóta ekki trausts almennings. Það efnahagslega óveður, sem yfir okkur hefur gengið, hefur að stórum hluta skapað þetta traustsrof. Fólk vantreystir því sem stjórnvöld halda fram enda töluðu þau um að kerfið væri öruggt allt fram á síðasta dag. Upplifun okkar er því sú að okkur hafi ekki verið sagt rétt og satt frá - að við höfum verið blekkt. Til þess að geta endurreist íslenskt efnahagslíf verða stjórnvöld og stofnanir þeirra að endurheimta traust almennings. Það ferli er nú hafið með endurskipulagninu á yfirstjórn Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Einnig hefur verið boðað til kosninga þar sem stjórnmálamenn leita eftir endurnýjuðu eða nýju umboði frá kjósendum. Kosningarnar eru mikilvægar í því ferli að endurheimta traust kjósenda á stjórnvöldum.
Hvar sem ég hitti fólk á ferðum mínum um kjördæmið upplifi ég vantraust þess á stjórnvöldum. Fólk vill sjá breytingar. Það vill gegnsæ og heiðarleg vinnubrögð. Að skapa stjórnvöldum - og að endurheimta virðingu Alþingis - verður höfuðverkefni stjórnmálamanna á næsta kjörtímabili. Það verður aðeins gert með breyttum áherslum og nýjum vinnubrögðum. Fyrir því vil ég berjast.
Hæfasta fólkið
Ný og breytt vinnubrögð eiga að tryggja það að við ráðum alltaf hæfasta fólkið til starfa í mikilvæg störf á vegum ríkisins. Við verðum að láta af þeim ósið að eftirláta flokksgæðingum stöður, þar sem augljóst er að aðrar forsendur - en pólitískar - verða að vera til staðar, til þess að vel takist til. Augljóst dæmi um þetta er staða formanns bankastjórnar Seðlabankans. Vinnubrögð, þar sem faglegar kröfur eru látnar víkja á kostnað pólitískra vinargreiða, eru ein af ástæðum þess að staðan í efnahagsmálum þjóðarinnar er eins og raun ber vitni. Við höfum ekki gert nógu miklar faglegar kröfur til manna, sem ætlað er að vinna mikilvæg störf í þágu almennings. Kjósendur eiga heimtingu á því að alltaf sé valið hæfasta fólkið.
Pólitísk spilling í embættisveitingum er hluti af stjórnmálum gærdagsins - pólitík Sjálfstæðisflokksins - og þeim þarf að henda út úr íslenskum stjórnmálum hið snarasta. Fyrir því vil ég berjast og býð þess vegna fram krafta mína í 2. - 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Formaður bæjarráðs Hornafjarðar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Athugasemdir
Sá trúnaðarbrestur sem svo mikið er talað um, er væntanlega að baki. Mér fannst óvissa þess tímabils meðan Samfylkingin var í stjórn með Íhaldinu, vera þjóðinni erfiðust. Nú er fólk að byrja að sjá til lands og ég veit að fólk spyr sig nú, hvernig stjórn fáum við eftir kosningar. Ganga flokkar óbundnir til kosninga, það er kannski stóra spurningin núna.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.3.2009 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.