15.5.2008 | 00:20
Eftirlaunaósóminn
Það er dásamlegt að fylgjast með tilburðum andstæðinga Samfylkingarinnar reyna að gera hana að blóraböggli vegna eftirlaunaósómans sem samþykktur var í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og Framóknarflokksins.
Þingflokkur Samfylkingarinnar, með einni undantekningu, samþykkti ekki þennan ósóma þar sem æðstu ráðamönnum þjóðarinnar voru skammtaðar ríflegar lífeyrisgreiðslur. Þarna var um að ræða sérhagsmunagæsla af verstu gerð. Sérstaklega eru tilburðir Framsóknarmanna til þess að gera hlut Samfylkingarinnar í þessu máli ótrúverðugan hjákátlegir þar sem þeir eru ásamt Sjálfstæðismönnum stærstu syndaselirnir í þessu máli öllu.
Það er verkefni Samfylkingarinnar að vinda ofan af þessari vitleysi fyrri ríkisstjórnar en til þess að það geti gengið eftir þurfa fleiri að koma að því máli. Í ríkisstjórnarsáttmálanum er skýrt kveðið á um það þetta baráttumál Samfylkingarinnar verði tekið til endurskoðunar og lífeyrisréttindi ráðamanna þjóðarinnar verði færð nær kjörum almennings.
Síðast þegar ég vissi þá er kjörtímabilið fjögur ár og mér er það til efs að nokkurn tíma hafi menn verið farnir að tala um svikin loforð nokkurs stjórnmálaflokks jafn snemma á kjörtímabili og núna er gert. Herferð Stöðvar Tvö gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á síðustu vikum er með hreinum ólíkindum og langt síðan maður hefur orðið vitni að öðru eins. Hægt væri að skilja þessa umfjöllun stöðvarinnar ef eitt ár væri til kosninga en ekki núna þegar ekki er liðið eitt ár af yfirstandandi kjörtímabili.
Miðað við áhuga fréttastofunnar á málinu ætti hún að hefja rannsókn á því hvernig þessi ákvörðun var tilkomin, hverjir stóðu að henni og hverji voru á móti henni. Það væri upplýsandi upprifjun fyrir almenning á þessum tímapunkti. Heimatök fréttastjórans á fréttastofu Stöðvar Tvö til þess að fara vel ofan í saumana á þessu máli ættu að vera tiltölulega hæg.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.