30.9.2007 | 14:08
Valhallarræða Geirs
Ræða Geirs H. Haarde í Valhöll í gær olli mér að vissu leyti töluverðum vonbrigðum. Því get ég ekki leynt. Davíðsarmurinni í flokknum virðist enn hafa töluverð áhrif og völd í flokknum. Fundurinn virðist gagngert hafa verið haldinn til þess að róa ESB andstæðinga í röðum Sjálfstæðisflokksins. Geir sagði t.a.m. að Samfylkingin hefði það nánast á sinni stefnuskrá að ganga í Evrópubandalagið "no matter what" eins og hann orðaði það á höfuðtungu útrásarinnar. Með því var hann nánast að ýja að því að Samfylkingin vildi ganga í Evrópusambandið jafnvel þó hagsmunum okkar væri ekki betur borgið þar. Það þótti mér algerlega óþarft hjá honum.
Að undanförnu hefur það hins vegar komið í ljós að það eru miklu fleiri tilbúnir að fylgja Samfylkingunni í umræðu um Evrópu - og Evrumál, t.a.m. fólk úr atvinnu - og viðskiptalífinu. Það gerðu menn ekki af jafn miklum krafti þegar Halldór Ásgrímsson reyndi með takmörkuðum árangri að koma Evrópumálunum á dagskrá. Hann hafði heldur ekki Framsóknarflokkinn á bak við sig í þeirri umræðu.
En nú er Samfylkingin komin í ríkisstjórn og þá verða afturgöngur úr fortíðinni í Sjálfstæðisflokknum að gera sér grein fyrir því að við það eru Evrópumálin sannarlega á dagskrá. Fólk úr atvinnulífinu virðist líka átta sig á því að málflutningur okkar í þessum málum er ekki eitthvað gaspur út í loftið heldur er hér um einbeittan vilja að ræða. Þó er það nú sennilega rétt að hjá forsætisráðherra að ekki verður sótt um aðild á þessu kjörtímabili.
Það er þó ýmislegt sem eykur manni bjartsýni um það að raunverulegur vilji sé hjá Sjálfstæðisflokknum að fara að huga að þessum málum. Nægir þar að nefna málflutlutning Guðfinnu Bjarnadóttur, alþingiskonu Sjálfstæðisflokksins, í grein, sem birtist í Blaðinu 25. september, þar sem því er lýst yfir að Evran sé á dagskrá og að mikilvægt sé að huga að óstöðugu gengi krónunnar sem og háum vöxtum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.