10.1.2007 | 21:18
Heilbrigðisráðherra í heimsókn
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, heimsótti Heilbrigðisstofnun Suðausturlands í dag. Hún heilsaði upp á starfsmenn og kynnti sér starfsemina. Einnig notaði hún tækifærið til þess að undirrita samning við Heilbrigðisstofnunina um aukna geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga í Austur - Skaftafellssýslu. Samningurinn færir stofnuninni tvær milljónir á næstu tveimur árum til þess að standa straum af verkefninu. Sannarlega þarft verkefni þar á ferðinni.
Ráðherra notaði heimsóknina líka til þess að skoða og vígja formlega ný röntgentæki sem búið er að taka í notkun á heilsugæslunni. Tækin eru að langmestu leyti kostuð af einstkalingum og fyrirtækjum hér í samfélaginu. Óhætt er að segja að einstaklingar og fyrirtæki hafi brugðist vel við því þegar kallið kom um að endurnýja tækin því um verðmæt tæki er að ræða. Í máli starfsmanna kom fram að um algjöra byltingu væri að ræða fyrir starfsemina á heilsugæslunni.
Ýtt á eftir þjónustusamningi
Heilbrigðis - og öldrunarráð Hornafjarðar notaði einnig tækifærið til þess að ræða við ráðherra um endurnýjun á þjónustusamningi á milli ráðuneytisins og sveitarfélagsins um fyrirkomulag heilbrigðis - og öldrunarþjónustu í Austur - Skaftafellssýslu. Samningur við ráðuneytið rann út um áramót. Við lögðum á það mikla áherslu að sveitarfélagið vil halda áfram að vinna að verkefninu. Í raun teljum við engin rök fyrir því að ríkið aftur við rekstri heilbrigðis - og öldrunarþjónustunnar í sýslunni. Þvert á móti teljum við að hér hafi verið unnið gott og metnaðarfullt starf á síðustu árum. Á síðustu árum hefur verið unnið markvisst að því að framfylgja þeirri stefnu í öldrunarþjónustu sem Siv Friðleifsdóttir hefur markað sem heilbrigðisráðherra, þ.e. að gera öldruðum kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði.
Við höfum lagt á það ríka áherslu að gera öldruðum kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði og það höfum við gert með því að efla og styrkja með markvissum hætti heimahjúkrun og hvíldarinnlagnir. Með því móti hefur okkur tekist að fækka umtalsvert í langlegu. Þetta er árangur sem við teljum nær öruggt að hefði ekki náðst nema vegna þess að sveitarfélagið hefur stýrt verkefninu og hefur getað lagað þjónustuna að staðbundnum aðstæðum. Þetta er kjarni málsins og þess vegna á ráðuneytið að endurnýja samninginn við okkur.
Þriggja lækna hérað og heimahjúkrun
Í viðræðum okkar við ráðuneytið leggjum við á það ríka áherslu að áfram verði litið á Austur-Skaftafellssýslu sem þriggja lækna hérað. Svæðið er mjög einangrað landfræðilega og læknisfræðilega. Langt er í næstu heilbrigðisþjónustu og spítala. Sjúkraflug á um mjög langan veg að fara. Einnig er vaktaálag mikið á læknum nú þegar og ef einungis væri um tvær læknastöður að ræða myndi það versna enn frekar. Heilbrigðis - og öldrunarráð telur einfaldlega að þrjár læknastöður séu grundvöllur mannsæmandi heilbrigðisþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. E.t.v. er nauðsynlegt að taka það fram fyrir þá sem ekki vita að sveitarfélagið nær yfir alla Austur-Skaftafellssýlu.
Einnig leggjum við mikla áherslu á að tekið verði sérstakt tillit til stóraukinnar heimahjúkrunar á svæðinu. En við erum ekki hætt á þeirri vegferð. Við viljum halda áfram að auka þátt heimahjúkrunar í starfsemi Heilbrigðisstofnunarinnar og til þess þurfum við aukið fjármagn. Þannig getum við haldið áfram á þeirri leið að vinna eftir stefnumörkun núverandi heilbrigðisráðherra í öldrunarþjónustu, þ.e. að gera öldruðum kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Nóvember 2011
- Janúar 2011
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Af mbl.is
Fólk
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
- Náði botninum við dánarbeð ömmu sinnar
- Aldís Amah með hlutverk í Hallmark-jólamynd
Viðskipti
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
- Innherji: Frekari uppsagnir en nú tveir forstjórar
- Eigið fé er dýrasta fjármögnunin
- Skoða skráningu á Norðurlöndum
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.