Leita í fréttum mbl.is

Margbreytileg sannfæring

Fjórum nýjum þingmönnum undir merkjum Borgarahreyfingarinnar skolaði á þing í vor á öldu lýðræðsvakningar í kjölfar hinnar svokölluðu búsáhaldabyltingar. Ekki skal lítið úr því gert að því fylgir vafalaust mikið álag að standa undir þeim fjölbreyttu væntingum sem eru gerðar til þingmanna sem kosnir eru á þing í kjölfar slíkrar byltingar.

Það er ekki lítið verk að vera boðberar nýrra tíma, siðbótar, lýðræðisumbóta og heiðarlegra stjórnmála - ekki heiglum hent gæti maður freistast til að segja. Að mati margra þeirra, sem mjög svo töluðu fyrir siðbót í íslenskri pólitík í aðdraganda kosninga, var forsenda þess að nýir tímar gætu haldið innreið sína í íslenska póltík sú að fram kæmi fram ný hreyfing, sem ætti ekkert skylt við hinn alræmda fjórflokk.

Þrælslund og ótti þingmanna fjórflokksins alræmda við að ganga gegn flokksviljanum í gegnum árin hefði verið svo takmarkalaus að nánast enginn þingmaður fjórflokksins alræmda hefur nokkurn tímann greitt atkvæði samkvæmt títtnefndri sannfæringu - eingöngu eftir flokkslínum.  Sennilega er þetta eilítil oftúlkun hjá mér en engu að síður var það svo að fólk taldi að siðbót og lýðræðisumbótum yrði ekki hægt að berjast fyrir innan gamla flokkakerfisins.

Margt af þessu má eflaust til sanns vegar færa. Flokkarnir hafa t.d. alltaf átt erfitt með að koma á stjórnarskrárbreytingum - þar hafa þröngir hagsmunir þingmannanna sjálfra oft ráðið för. Síðustu ár hafa Evrópumálin líka þvælst fyrir flokkunum. Þeir hafa ekki getað klárað þau mál sjálfir og hafa líka reynst óviljugir til þess að eftirláta kjósendum að leiða þau til lykta. Í þeim málum hafa sumir flokkar viljað láta flokkshagsmuni ganga framar þjóðarhag. En með samþykkt Alþingis í dag er sem betur fer búið að brjóta það ægivald á bak aftur.

En framganga þingmanna Borgarahreyfingarinnar - sem voru um margt efnilegir og mörgum þóttu þeir vera sem ferskur andvari um sali hins staðnaða Alþingis - í umræðunum um ESB tillögu ríkisstjórnarinnar hefur verið með þeim hætti að vafalaust velta margir því núna fyrir sér hvort ekki hafi verið betur heima setið en af stað farið. Það er a.m.k. erfitt að færa gild rök fyrir því að frammistaðan hafi verið í samræmi við hugmyndir fólks um siðbót og lýðræðisumbætur í íslenskum stjórnmálum.

Það þarf því ekki að undra að mikil ólga sé innan Borgarahreyfingarinnar vegna málsins. En til þess að allrar sanngirni sé gætt er rétt að halda því til haga að ekki tók allur þingflokkur hreyfingarinnar þátt í þessari undarlegu hrossakaupa - og kúgunarpólitík. Þráinn Bertelsson ákvað að standa með sannfæringu sinni og þjóðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Jónsson

Borgarahreyfingin lofaði góðu í upphafi með stefnu sinni um heiðarlega pólitík lausa við einkavinatengsl og hrossakaup en hefur nú fallið í þá gryfju að enda eins og þeir sem þau fordæmdu.

Það er vissulega skömm fyrir Borgarahreyfinguna að hafa gengið á bak loforði sínu um að gefa þjóðinni kost á að kjósa um Evrópusambandið. Hver framtíð hreyfingarinnar verður eftir skömmina í gær veit ég ekki en mig grunar helst að þeir muni gjalda fyrir að hafa gengið á bak orða sinna í næstu kosningum og hreyfingin þurrkist út.

Ekki má þó gleyma því að fjölmargt gott fólk starfar innan hreyfingarinnar t.d. Þráinn Bertelsson sem var tryggur sínum kjósendum og Herberti Sveinbjörnssyni sem reyndi sitt ítrasta til að gefin loforð yrðu efnd.

Það ágæta fólk á vonandi framtíð fyrir sér í stjórnmálum en stjarna þeirra Þórs, Birgittu og Margrétar skín ekki lengur.

Kjartan Jónsson, 17.7.2009 kl. 15:56

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Eitthvað er nú mat manna á birtuskini misjafnt, því mér finnst gjörsamlega slokknað á Þráni Bertelssyni, og það sem betur fer vil ég segja.....

Ómar Bjarki Smárason, 17.7.2009 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband