Leita í fréttum mbl.is

Skemmtilegur leikur

Þrautakóngur er skemmtilegur leikur. Börn og ungmenni  hafa skemmt sér í þessum leik kynslóð fram af kynslóð. Leikurinn felst í því að stjórnandinn (þrautakóngurinn) í leiknum hleypur með hóp fólks á eftir sér og hópurinn á fylgja þrautakóngnum eftir og líkja eftir öllum hreyfingum hans. Þetta er ekki alltaf auðvelt fyrir hópinn og villast sumir af leið. Eftir því sem þrautakónginum tekst að rugla fleiri úr hópnum í ríminu þeim mun betri er hann talinn vera.

Besti þrautakóngurinn í íslenskum stjórnmálum í dag er Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Honum hefur tekist að hafa svo margar skoðanir í Evrópumálum að fylgismenn eiga erfitt með að átta sig á þeim öllum - og hafa sumir fylgismenn hans villst af leið. Hann hefur sveigt frá hægri til vinstri með fimlegum hreyfingum, hlaupið af krafti beint af augum og svo - án nokkurrar viðvörunar - hefur hann komið öllum að óvörum með því að hlaupa aftur á bak. Þetta gera aðeins bestu þrautakóngar enda hafa margir fylgismenn hans staðið einir eftir á pólitískum berangri eftir árangurslausar tilraunir til þess að fylgja þrautakónginum eftir.

Einn úr hópnum (þingmaður úr Eyjum), sem reynt hefur að elta kónginn, telur t.d. að innganga í ESB jafngildi því að ganga í hið nýja Sovét á meðan annar fylgismaður (stærðfræðingur og frændi kóngsins) telur að hafni þingið aðildarviðræðum sé það „uppskrift að áframhaldandi stöðnun og þrengingum þjóðarinnar um langa framtíð" - og spyr í kjölfarið hver vilji bera ábyrgð á því.

Eins og áður segir þá er takmark þrautakóngsins að rugla eins marga úr hópnum í ríminu og ljóst að það markmið hefur fullkomlega náðst í þessu tilvikum. Eflaust er erfitt að finna dæmi um aðra eins frammistöðu.

Þrautakóngur er samt sama marki brenndur og aðrir leikir. Maður fær leið á honum ef hann er langdreginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Góður

Sigurður Haukur Gíslason, 14.7.2009 kl. 20:18

2 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Já, og með sömu snilldartöktum þá endar Bjarni hlaupandi, aleinn og stefnulaus, líkt og priklaus raketta eitthvað út í loftið.

Ingimundur Bergmann, 14.7.2009 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband