Leita í fréttum mbl.is

Sókn í atvinnumálum

Líflegar umræður sköpuðust á borgarafundi, sem haldinn var í gærkvöldi í fyrirlestrarsal Nýheima. Þar var farið yfir fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2009. Allar lykiltölur í áætluninni bera það með sér að reksturinn og staða sveitarfélagsins er sterk. Helsta markmið okkar á þessu ári - í ljósi mikillar óvissu í efnarhagsmálum þjóðarinnar - verður að verja stöðu heimila og fyrirtækja eftir mætti. Töluverðar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í tengslum við flutning alls skólahalds Grunnskóla Hornafjarðar til Hafnar næsta haust.

Rætt var um viðhald á fasteignum sveitarfélagsins í dreifbýli. Í tengslum við sölu sveitarfélagsins á Nesjaskóla var ákveðið að hluti af söluandvirðinu yrði nýtt til viðhalds á fasteignum sveitarfélagsins í dreifbýlinu. Var þá helst litið til félagsheimilanna en viðhaldi þeirra hefur verið ábótavant undanfarin ár. í kjölfarið á því er mikilvægt að fram fari umræða um framtíðarnýtingu þessari fasteigna þannig að þær nýtist sem mest sínu nærsamfélagi.

Atvinnumál voru líka til umræðu á fundinum. Fram kom ánægja með þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á þeim vettvangi. Var þá helst litið nýundirritaðs samnings við Rolf Johansen og Co um vatnsátöppunarverksmiðju á Höfn, sem og samkomulags sveitarfélagsins við aðila sem hafa áform um að reisa gagnaver í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn leggur áherslu á aðgerðir til þess að auka fjölbreytnina í atvinnulífinu. Næstu skref í þeim málum verða þau að leggja fjármuni í jarðefna -, líftækni - og orkurannsóknir, sem geta nýst til áframhaldandi atvinnuuppbyggingar í samfélaginu. Mikilvægt er að vera vakandi yfir öllum þeim tækifærum sem skapast.

Umræður um fjarskiptamál í dreifbýli komu líka til umræðu - enda um mjög mikilvægt hagsmunamál að ræða fyrir sveitirnar. Ég kom þeirri skoðun minni á framfæri að það hlyti að verða eitt grundvallarmarkmiða stjórnvalda - hver sem þau kunna að verða í framtíðinna - að allir landsmenn sitji við sama borð á því sviði. Góð nettenging er forsenda þess að hægt að sé að byggja upp framsækna atvinnstarfsemi til sveita - hún er ekki fyrir hendi í dag.

Það var mjög góð tilbreyting frá þjóðmálaumræðunni í dag að mæta á fund þar sem almenn bjartsýni sveif yfir vötnum. Mér fannst fólk vera bjartsýnt fyrir hönd byggðalagsins þrátt fyrir aðsteðjandi vandamál í fjármála - og efnahagskerfi þjóðarinnar. Það var ánægjulegt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Árni og takk fyrir ágætan pistil.

Varðandi þetta í pistlinum: " Góð nettenging er forsenda þess að hægt að sé að byggja upp framsækna atvinnstarfsemi til sveita - hún er ekki fyrir hendi í dag". Þá er þetta nú ekki allskostar rétt hjá þér vegna þess að hluti af sveitunum í okkar  sveitarfélagi  hafa verið í mjög góðri nettengingu í rúmt ár, ( eða hafa haft kost á því) Þ.e.a.s Nes, Mýrar og allt vestur að Hestgerði.

Illa finnst mér komið ef menn vita þetta ekki og ekki síst þar sem það er hornfirskt fyrirtæki sem stendur að því að gefa mönnum kost á því að hafa öfluga internet tenginu heima hjá sér.  'Eg hefði persónulega viljað sjá það á sínum tíma að bæjarstjórn hefði bókað sérstaklega um það líkt og annað gott sem er gert hér í þessu sveitarfélagi.

Kv. Sigfús

Sigfús Már (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband