Leita í fréttum mbl.is

Erfitt en viðburðaríkt ár

Viðburðaríku ári er lokið - sem betur fer segja margir. Íslenska banka - og fjármálakerfið hrundi eins og spilaborg á haustmánuðum vegna hinnar alþjóðlegu fjármálakrísu. Bakland þeirra í stjórnvöldum og seðlabanka reyndist haldlítið þegar á hólminn var komið. Þó var ljóst og löngu vitað að vöxtur viðskiptabankanna var svo mikill að það var sérstaklega nauðsynlegt að þeir ættu öflugan bakhjarl. Svo reyndist ekki vera og m.a. þess vegna fór sem fór. Trúverðuleiki þeirra var enginn þegar í ljós kom að stærð þeirra var a.m.k. tíföld landsframleiðsla og bakland þeirra engan veginn í stakk búið til þess að koma þeim til hjálpar á erfiðum tímum.

Íslenska krónan söng sitt síðasta á árinu - útförin er reyndar orðin frekar langdregin - með tilheyrandi búsifjum fyrir fyrirtæki og almenning. Raddir um upptöku Evru gerðust háværari og þar með komst umræðan um aðild landsins að Evrópusambandinu loksins almennilega á dagskrá. Nú er svo komið að allir stjórnmálaflokkar - nema Frjálslyndir - eru að reyna að finna leiðir til þessu að koma þessu mikilvægasta máli dagsins í dag í farveg. Allir eru sammála um það að þjóðin á að hafa síðasta orðið, þ.e. að samningur verði  borinn undir þjóðaratkvæði.

Enginn þarf heldur að velkjast í vafa um það að okkar bíður erfitt en viðburðaríkt ár. Við horfum upp á hærri atvinnuleysistölur en við höfum áður þekkt, meiri samdrátt og niðurskurð en við höfum lengi tekist á við.

Á stjórnmálasviðinu er viðbúið að mikil átök verði. Þau munu hverfast um Evrópusambandsaðild að mestu leyti. Fljótlega mun koma í ljós hvort átök um ESB verða til þess að stjórnmálamenn sæki endurnýjað umboð til þjóðarinnar. En mér segist svo hugur um að við munum kjósa um eitthvað á þessu ári, annað hvort um aðildarsamning eða til Alþingis, nema um hvoru tveggja verði að ræða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband