Leita í fréttum mbl.is

Fullnaðarsigur sérhagsmunanna

Hótanir Sjálfstæðismanna um málþóf hafa borið árangur og það telja þeir vera fullnaðarsigur. Þeirra sigur er sigur sérhagsmunanna yfir almannahagsmunum og það er auðvitað gott fyrir kjósendurr að sjá núna fyrir kosingar hversu mikla hamingju þessi sigur sérhagsmunanna veitir þeim - og hvar tryggð þeirra liggur.

Fullnaðarsigur Íhaldsins fólst í því að koma í veg fyrir lýðræðislega afgreiðslu þingsins á eðlilegum og sanngjörnum breytingum á stjórnarskránni, sem allir flokkar á Alþingi nema Sjálfstæðisflokkurinn, eru sammála um. Þetta tókst þeim með því að hóta málþófi.

Það sem þeim tókst m.a. að koma í veg var:

1. Að afnema varanlega vald til að gefa eða selja einkaaðilum
sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar.
2. Færa almenningi vald til að geta haft bein áhrif á mál milli
kosninga með ákvæðum um þjóðaratkvæðagreiðslur.
3. Færa almenningi beinna vald til breytinga á stjórnarskrá með ákvæði
um hvernig stjórnarskrá er breytt milli kosninga.

Hér sjáum við auðvitað þann áherslumun sem er á jafnaðarstefnunni annars vegar og varðstöðu Íhaldsins um völd og sérshagsmuni hins vegar. Það er mikilvægt að þessu sé til haga haldið.

Yfir þessum fullnaðarsigri gleðjast þér ósegjanlega núna og ganga stoltir til þeirrar kosningabaráttu sem nú stendur yfir. Verði þeim að góðu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Það á ekki að gera sjálfstæðismönnum það til geðs að slíta þingi núna. Leyfum þeim að tala alveg fram að kjördegi. Fylgið reytist af þeim á meðan.

Sigurður Haukur Gíslason, 17.4.2009 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband