Leita í fréttum mbl.is

Heilbrigðis - og öldrunarmál

Þessa dagana er í fullum gangi vinna við þjónustusamning um rekstur heilbrigðis - og öldrunarþjónustu í sveitarfélaginu á milli Heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélagsins. Sá samningur sem verið hefur í gildi frá árinu 2003 rann úr gildi um síðustu áramót. Þetta hefur verið löng og strembin vinna sem embættismenn og kjörnir fulltrúar hafa lagt á sig í tengslum við endurgerð samningsins. Á ýmsu hefur gengið í samningaviðræðunum og m.a. kynnti ráðuneytið mjög fljótlega fyrir okkur nýtt reiknilíkan fyrir heilsugæsluna sem var í smíðum í ráðuneytunum. Frá upphafi var ljóst að okkur leist mjög illa á reiknilíkanið sem gerði ráð fyrir fækkun stöðugilda lækna í sveitarfélaginu. Þetta var eitthvað sem við áttum mjög erfitt með að sætta okkur við. Það er einfaldlega mat bæjarstjórnar að þrjú stöðugildi lækna séu grundvöllur og forsenda mannsæmandi heilbrigðisþjónustu í sveitarfélaginu. Í drögum að nýjum þjónustusamningi sem núna er meðförum fjármálaráðuneytisins er áfram gert ráð fyrir þremur stöðugildum lækna en ekki fækkun eins og ráðuneytið gerði upphaflega ráð fyrir.

Samstaða í bæjarstjórn

Frá upphafi hefur verið mikil samstaða um það í bæjarstjórn að stefnt skuli að því að gera nýjan þjónustusamning við ráðuneytið. Bæjarstjórn hefur verið þess fullviss að sveitarfélagið hafi staðið sig vel við framkvæmd þjónustusamningsins og að fjármunum hins opinbera hafi verið vel varið. Heimahjúkrun hefur verið stóraukin og notendur hafa lýst yfir mikilli ánægju með þá þjónustu eins og fram kemur í nýlegri þjónustukönnun sem Capacent framkvæmdi fyrir sveitarfélagið. Heimahjúkrunin hefur eflst það mikið að stórlega hefur fækkað í langlegu, bæði í dvalar - og hjúkrunarrýmum. Þetta er í góðu samræmi við stefnu heilbrigðisyfirvalda í landinu um að fólk eigi að geta búið sem lengst í heimahúsum.

Í upphafi þessa árs fór bæjarstjóri fram á það við Ríkisendurskoðun að hún gerði stjórnsýsluúttekt á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Á morgun, miðvikudaginn 20. júní verður fundur í bæjarstjórn Hornafjarðar þar sem skýrsla ríkisendurskoðunar verður tekin til umfjöllunar. Það er vonandi að skýrslan eigi eftir að reynast gagnlegt innlegg í alla þessa umræðu.

Vangaveltur um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga

Vinna við gerð þjónustusamnings eins og þennan gefur öllum sem að þeirri vinnu koma ótal tilefni til vangaveltna um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og ekki síður samskipt ríkis og sveitarfélaga. Til lengri tíma litið er það engin framtíðarlausn að fulltrúar ráðuneyta og einstakra sveitarfélaga setjist niður á nokkurra ára fresti og ræði um hugsanlegt framhald samstarfsins. Þjónustusamningar til nokkurra ára í senn eru ekki til þess fallnir að skapa festu og öryggi í því starfi sem um ræðir. Fyrirkomulagið er einnig til þess fallið að skapa tortryggni og tregðu í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Það er einfaldlega ekki boðlegt fyrir starfsmenn og kjörna fulltrúa sveitarfélaga að þurfa að koma á fund ráðuneytismanna eða ráðherra sjálfs eins og kjökrandi sníkjudýr. Samskiptum ríkis og sveitarfélaga þarf að finna betri farveg en þennan.

Hafi menn einhvern raunverulegan áhuga á því að færa málefni aldraðra og heilsugæslunnar yfir til sveitarfélaganna er það mín skoðun að menn verði þá að fara söma leið og farin var þegar grunnskólinn færðist yfir til sveitarfélaganna. Þá var málaflokkurinn tekinn í heild sinni og sveitarfélögunum tryggðir ákveðnir tekjustofnar til þess að standa undir rekstrinum. Lengi hefur verið rætt um það á meðal sveitarstjórnarmanna og alþingismanna hvort rætt væri að gera hið sama við málefni aldraðra og heilsugæsluna en í raun hefur lítið verið gert í þeim málum síðustu ár.

Niðurstöður þjónustukönnunar Capacent gefa líka sterklega til kynna að þjónusta við eldri borgara í sveitarfélaginu sem með mjög góðu móti. Sveitarfélögin víðs vegar um landið hafa lengi talað um það að málefni aldraðra sé dæmi um nærþjónustu sem eigi heima í vörslu sveitarfélaganna. Yngstu skjólstæðingarnir í samfélaginu, leikskóla - og grunnskólabörnin eru á ábyrgð sveitarfélaganna. Því skyldu elstu skjólstæðingarnir ekki vera það líka?

Niðurstöður könnunarinnar hjá Capacent styðja þá skoðun mína að sveitarstjórnarstiginu sé vel treystandi til þess að taka við þeim málaflokki. Þetta er eitthvað sem ég tel vert að hafa í huga þegar farið verður að ræða um tilfærslu á þessum málaflokki af einhverri alvöru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband