Leita í fréttum mbl.is

Þjónustukönnun Capacent

Það er orðið langt síðan ég bloggaði síðast. Sennilega er maður ennþá að jafna sig eftir atið fyrir og eftir kosningarnar. Ég er mjög ánægður með það hvernig ný ríkisstjórn hefur farið af stað, sérstaklega er ég ánægður með aðgerðaáætlunina í málefnum barna sem var samþykkt á nýafstöðnu sumarþingi.

Af heimavígstöðvunum er það helst að frétta að bæjarstjórnin ákvað mjóg fljótt eftir að hún tók við að framkvæma þjónustukönnun fyrir sveitarfélagið. Capacent Gallup vann könnunina fyrir okkur og var með kynningu á helstu niðurstöðum fyrir síðasta bæjarstjórnarfund sem haldinn var 14. júní síðastliðinn. Í niðurstöðunum kemur margt forvitnilegt í ljós. Almennt má segja að íbúar sveitarfélagsins eru nokkuð ánægðir með þá þjónustu sem boðið er upp á í sveitarfélaginu. Í könnuninni er fólk einnig spurt út í þjónustu sem ekki er veitt af sveitarfélaginu, t.a.m. er spurt út í þjónustu framhaldsskólans.

Niðurstaðan fyrir Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu er eitt það allra ánægjulegasta í allri þessari könnun. Skólinn fær nánast fullt hús stiga hjá þeim sem nýta sér þjónustu hans. Þetta eru sannarlega gleðileg tíðindi samfélagið á Hornafirði þar sem góður framhaldsskóli styður við vöxt og viðgang samfélagsins. Stjórnendur og starfsfólk skólans eiga heiður skilinn fyrir það að hafa staðið svona vel að málum.  

Ýmislegt annað kemur vel út í könnuninni t.a.m. leikskólarnir og grunnskólarnir sem og tónlistarskólinn. Einnig kemur fram ánægja með starfsemi hjúkrunarheimilisins og heimahjúkrun á stðanum auk fjölda annarra hluta. Niðurstöður svona könnunar vekja oft fleiri spurningar en þær svara en þær gefa okkur mikilsverðar upplýsingar um það hvar við erum að standa okkur og hvar ekki. Niðurstöðurnar eru góður grunnur fyrir okkur sem vinnum að stjórn sveitarfélagsins til þess að vinna eftir.

Könnunin sýnir okkur nefnilega þá þætti í starfinu sem íbúarnir eru ekki nógu ánægðir með. Eitt atriði staðnæmist maður sérstaklega við og það er að fólk er afar óánægt með framboð lóða í sveitarfélaginu. Þar er vissulega verka að vinna. Í ljósi þessa er gaman að geta þess að nú er unnið að nýju skipulagi fyrir Leirusvæðið. Gamla skipulaginu hefur verið breytt þar og lóðum undir parhús og raðhús hefur verið breytt í einbýlishúsalóðir.

Bygginga - og skipulagsnefnd mun taka tillöguna til umfjöllunar á fundi sínum næsta fimmtudag. Það er Ulla Pedersen, landslagsarkitekt sem hefur unnið tillöguna fyrir sveitarfélagið.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband