Leita í fréttum mbl.is

Í erfiðleikum með Evru

Magnað var að fylgjast með Geir H. Haarde, forsætisráðherra fjalla um hugsanlega upptöku Evrunnar í sjónvarpinu fyrir skemmstu. Hann taldi það óráðlegt að taka upp Evruna en færði í raun engin rök fyrir þeirri afstöðu sinni.

Einnig blés hann á það að ósætti væri innan ríkisstjórnarinnar í Evrumálum. Þó liggur það ljóst fyrir að Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra hefur talað mjög á þeim nótum að skynsamlegt væri að taka upp Evruna. Fleiri framsóknarmenn hafa talað á þessum nótum á undanförnum árum. Íhaldið heldur hins vegar fast í þá afstöðu sína sem þeir hafa gert að listgrein á undanförnum árum, þ.e. að stinga höfðinu í sandinn og svara út í hött.

Forsætisráðherrann kórónaði síðan allt saman þegar lýsti þeirri skoðun sinni að það væri í raun bara Samfylkingarfólk sem gæti talað krónuna niður en ekki Framsóknarfólk. Ekki var hægt að skilja orð hans öðruvísi þegar fréttamaður spurði hann hvort hann væri að beina orðum sínum til Framsókarmanna sem töluðu um upptöku Evrunnar. Hann var nú aldeilis ekki að því heldur var hann að tala um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar. Hún ein hefði talað krónuna niður og var því sek um óábyrgt hjal. Það var einmitt það!!!

Er hægt að bjóða fóki upp á svona umræðu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

innritunarkvitt

Ólafur fannberg, 13.1.2007 kl. 19:50

2 identicon

Ingibjörg Sólrún hlýtur að fara að geta komið því inn í höfuðið á sér að ekki verður tekin upp evra án þess að ganga í evrópusambandið. Það tekur marga mánuði jafnvel ár, er flókið ferli og það eru strangir og margir skilmálar fólgnir í því. Því verður ekki í þetta hlaupið. Ingibjörg og hennar  flokkur skilja hins vegar ekki gildi þess að gera hlutina vel og hugsa þá út í gegn og geta þar af leiðandi aldrei tekið afleiðingum ef ílla fer. Kveðja    

Steingrímur Páll (IP-tala skráð) 13.1.2007 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband