Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðisflokknum refsað fyrir brunaútsöluna á stefnuskránni

Reykvíkingar eru skynsamt fólk sem lætur ekki spila með sig. Það sýnir nýr þjóðarpúls Capacent Gallups á fylgi flokkanna í Reykjavík. Einnig kemur fram að nýr meirihluti og nýr borgarstjóri hafa ekki sterkt bakland á meðal borgarbúa svo ekki sé fastar að orði kveðið. Einungis 27% þáttakenda í könnuninni sögðust ánægð með nýja meirihlutann.

Sjálfstæðisflokkurinn verður að lifa við það að hafa selt öll sín stefnumál á brunaútsölu á altari pólitískrar endurreisnar Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, sem áhöld eru um hvort njóti meira trausts en Ólafur F. Magnússon og er þá mikið sagt. En Ránfuglinn verður líka að lifa við það að hafa leitt til öndvegis í borgarstjórastólinn mann sem einungis 16% borgarbúa eru ánægðir með. Þetta verða Hanna Birna og Gísli Marteinn að lifa við þótt sá síðarnefndi hamist nú við að telja fólki trú um að hans hugsjónir hafi ekki verið hluti af brunaútsölunni.

Engar sögubækur, sem ég hef lesið um íslenska pólitík, segja frá jafn ömurlegri byrjun á nokkru pólitísku samstarfi og við höfum nú orðið vitni að. Ég veit ekki hvort það er hægt, en ég held að gamli góði Villi sé búinn að toppa sjálfan sig frá því í haust.

E.t.v. þagna nú raddirnar um það að þessi gjörningur Sjálfstæðismanna í borginni í síðustu viku hafi ekki ofboðið fólki. Menn ættu kannski að hugsa sig betur um þegar þeir segja að öll mótmælin hafi verið marklaus vegna þess að nýju minnihlutaflokkarnir hafi skipulagt þau. Mogginn gekk reyndar svo langt að segja að Samfylkingin ein og sér hefði staðið að mótmælunum. Gott ef Dagur hafi ekki bara skipulagt þau sjálfur, einn og óstuddur svo vondur og andlýðræðislegur er hann skv. Mogganum.

Hvernig ætli Styrmir bregðist við núna þegar í ljós kemur eftir þessi ósköp öll, að fólkið í borginni ber mest traust til Samfylkingarinnar og þar innan borðs er Dagur B. Eggertssonar? Hvaða ráðabrugg og óhróður koma Staksteinar til með að bjóða upp á þá? Óhróðurinn er alltaf í réttu hlutfalli við örvæntinguna þannig að við megum eiga von á flugeldasýningu núna.

En skynsemin er eina leiðin út úr þessum ógöngum fyrir félagana á ritstjórnarskrifstofunni og skynsemin felst í því að takast á við þá staðreynd að fólkið er einfaldlega hætt að taka mark á óhróðrinum eins og þjóðarpúls Gallups sýnir fram á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallur Magnússon

Kveðja til Hornfirðinga!

Það verður vonandi fjör á þorrablóti Hornfirðing á höfuðborgarsvæðinu um næstu helgi. Við mætum :)

En varðandi bloggið þitt - þá held ég að eina lausnin sé Þjóðstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík takk!

Hallur Magnússon, 1.2.2008 kl. 22:43

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Og kveiktu í sjálfir!

Auðun Gíslason, 1.2.2008 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband