Leita í fréttum mbl.is

Störf án staðsetningar

Eitt af því sem ég fylgist sérstaklega með í ríkisstjórnarsamstarfi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks eru störf án staðsetningar. Þetta var eitt þeirra byggðamálefna sem Samfylkingin setti á oddinn í síðustu kosningum. Enda segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar undir millifyrirsögninnni, landið verði eitt búsetu - og atvinnusvæði:

"Skilgreind verði þau störf á vegum ríkisins sem hægt er að vinna án tillits til staðsetningar og þannig stuðlað að fjölgun starfa á landsbyggðinni."

Það er sérstaklega markmiðið með stefnunni sem vekur áhuga minn en það er að stuðla að fjölgun starfa á landsbyggðinni. Starf framkvæmdastjóra yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs er í mínum huga þess eðlis að starfsmaðurinn á að vera staðsettur í nærumhverfi þjóðgarðsins. Í Sveitarfélaginu Hornafirði höfum við lengið bundið vonir við það að starfsstöð yfirstjórnar eða höfuðstöðvar þjóðgarðsins verði staðsettar í sveitarfélaginu. Fyrir því barðist okkar fulltrúi í yfirstjórninni, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, með kjafti og klóm. Það urðu okkur því nokkur vonbrigði þegar okkar sjónarmið urðu undir í stjórninni.

Að auglýsa þetta starf án tillits til staðsetningar finnst mér þó að sumu leyti ganga gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar um störf án staðsetningar. Það gæti hreinlega þýtt að starfsmaðurinn yrði staðsettur á höfuðborgarsvæðinu og miðað við stefnuyfirlýsinguna þá var það aldrei ætlunin. Við þekkjum það úr þjóðgarðinum í Skaftafelli hvernig það er að láta fjarstýra þjóðgarði úr 400 km. fjarlægð. Það gaf ekki nógu góða raun og þess vegna viljum við fyrir alla muni forðast að það verði raunin á nýjan leik.  

Þetta eru að mínu mati málefnaleg rök sem ég trúi og vona að yfirstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs taki til athugunar þegar að ráðningu framkvæmdastjóra kemur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband