Leita í fréttum mbl.is

Styttist í unglingalandsmót

vallarframkvæmdir 003Ég fór og heimsótti stjórnstöð unglingalandsmótsnefndarinnar í Heppuskóla í dag. Þar voru allir á fullu að undirbúa mótið og greinilegt að þar á bæ ætla menn sér stóra hluti um verslunarmannahelgina. Fólk var greinilega staðráðið í því að láta hlutina ganga vel upp á mótinu og lætur ekki erfiðleika í einstaka málum stöðva sig. Gríðarleg vinna liggur að baki móti eins og þessu og væri aldrei mögulegt ef ekki væri fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf sjálfboðaliða.

Gaman er að sjá hvað unglingarnir í bæjarvinnunni hafa tekið vel til hendinni í kringum íþróttasvæðið. Þar er allt að verða snyrtilegt og fallegt eftir framkvæmdir undanfarinna mánuða. Búið er að þökuleggja allt sem þarf að þökuleggja og nú berjast menn bara við að koma vætu í nýlagt grasið.

Nú þegar hafa tæplega hundrað manns boðið sig fram til þess að starfa sem sjálfboðaliðar á mótinu og sýnir það vel að mínu mati metnað Hornfirðinga í verki. Þeir ætla sér greinilega að hjálpa til við að halda stórglæsilegt unglingalandsmót sem allir geta verið stoltir af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Gangi ykkur vel með þetta spennandi mót .

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 30.7.2007 kl. 07:37

2 Smámynd: Árni Rúnar Þorvaldsson

Kærar þakkir fyrir það.

Árni Rúnar Þorvaldsson , 30.7.2007 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband