Leita í fréttum mbl.is

Samfylkingin á góðri siglingu

Skoðanakannanir síðustu daga færa okkur sönnur á því að Samfylkingin er í bullandi uppsveiflu um þessar mundir. Það er alveg sama á hvaða könnun er skoðuð, hvort sem um er að ræða í einstökum kjördæmum eða á landsvísu þá er tilhneigingin alltaf sú sama, Samfylkingin er á uppleið.

 

Baráttan lítur orðið illa út hjá formanni Framsóknarflokksins í Reykjavík norður. Kannanir mæla hann staðfastlega úti. Nú er tæp vika í kosningar og flokkurinn mælist með 7% fylgi í kjördæmi formannsins og það má glöggt greina að örvænting hefur gripið um sig í herbúðum flokksins.

 

VG má vel við una, bætir við sig í flestum könnunum frá síðustu kosningum. Þó er ljóst að það mikla flug sem verið hefur á þeim síðustu vikurnar er heldur að dala rétt fyrir kosningar.

 

Sjálfstæðisflokkurinn mælist hár en við vitum það að hann Íhaldið mælist alltaf með meira fylgi í könnunum heldur en á endanum kemur upp úr kjörkössunum. Annars er kosningabarátta Íhaldsins með hreinum ólíkindum því hún er hvergi sjáanleg.

 

Íslandshreyfingin nær ekki nokkru flugi og það virðist ætla að verða grafskrift þeirrar hreyfingar að hafa stuðlað að því að stjórnin héldi velli fari svo að ekki takist að fella stjórnina. Þá hefði nú verið betra heima setið en af stað farið.

 

Hvað Frjálslynda flokkinn varðar þá á ég mjög erfitt með að átta mig á gengi þess flokks. En trúlega fer Guðjón Arnar inn í Norðvesturkjördæmi og tekur með sér uppbótarþingmenn.

 

Þetta eru svo sannarlega góðar fréttir fyrir okkur í Samfylkingunni og alla landsmenn. Sjálfstæðisflokkurinn þarf öflugt aðhald og það aðhald verður einungis tryggt með öflugum jafnaðarflokki. Til þess að sveigja af leið misskiptingar og ójöfnuðar sem mörkuð hefur verið af ríkisstjórnarflokkunum undir forystu Sjálfstæðisflokksins er nauðsynlegt að Samfylkingin komi sterk út úr kosningunum. Einungis þannig verður hægt að endurreisa velferðarkerfið, sem stjórnarflokkarnir hafa mölvað niður á síðustu 12 árum, að norrænni fyrirmynd.

 

Eftir því sem liðið hefur á kosningabaráttuna hafa velferðarmálin sífellt orðið fyrirferðarmeiri sem er gott fyrir Samfylkinguna. Ástæðan er sú að engum flokki er betur treystandi fyrir þeim málaflokki. Samfylkingin er eini raunverulegi jafnaðar - og velferðarflokkurinn sem kjósendur geta treyst. Þetta vita hinir flokkarnir og í aðdraganda kosninga reyna þeir allir að skreyta sig með jafnaðarfjöðrum. En að loknum kosningum reita þeir fjaðrirnar og fara í sinn venjulega búning.  

 

Vörumst eftirlíkingar. Það þarf jafnaðarmenn til að reka jafnaðarstefnu.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband