Leita í fréttum mbl.is

Rýnt í marklausar kannanir

Heldur finnst mér menn draga of miklar ályktanir af könnun Frjálsrar Verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is. Úrtakið var minna en í könnun Fréttablaðsins fyrir skemmstu og svörunin álíka slæm.

Fyrirsagnir eins og "Ingibjörg í frjálsu falli" eiga einfaldlega ekki við nein rök að styðjast. Eina mælingin sem máli skiptir fer fram 12. maí nk. og þá sést hvort einhverjir flokkar eða leiðtogar þeirra eru í frjálsu falli.

Nú skiptir mestu máli fyrir Samfylkinguna að koma sinni skýru og góðu stefnu á framfæri, flokksfólk þarf að halda ró sinni, snúa bökum saman og standa þétt við bakið á forystunni.

Þegar fylgi Samfylkingarinnar var komið niður í 11% undir forystu Össurar Skarphéðinssonar þá báru flokksmenn gæfu til þess að gera nákvæmlega þetta og leiðin lá upp á við. Vonandi ber flokksfólki gæfa til þess að endurtaka þann leik, líka Hrafni Jökulssyni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Mér sýnist nú á skrifum Hrafns Jökulssonar að hann sé nú ekki "flokksmaður" Samfylkingarinnar eins og þú flokkar hann.  Grunar að hann hafi horfið frá því að vera hægri krati og sé nú orðinn þjóðernissinnaður sósíalisti og kjósi VG.  Alla vegana skýtur hann fast á SF en talar ætíð vel um VG.....

Sigfús Þ. Sigmundsson, 26.1.2007 kl. 14:13

2 identicon

Ertu ekki að grínast, "koma sinni skýru og góðu stefnu á framfæri" ?????

Friðrik V. (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband